Úrval - 01.08.1949, Síða 56
Danskur fjármálasérfræðingur ræðir
endurreisnaráform Evrópulandanna,
sem hann segir að séu —
Endurreisnaráœtlanir
án gagnkvœmrar samvinnu.
Grein úr „Fremtiden",
eftir dr. juris. Helmuth Gottschalk.
EKKIÐ þið söguna um unga
nútímaprestinn, sem vildi
sýna mannlegustu hlið sína,
þegar hann kom í heimsókn á
elliheimili, með því að lesa upp
úr verkum skopteiknarans
Storm-Petersen ? Uppátækið
heppnaðist vel, og gamla fólkið
hlustaði með athygli og alvöru.
„En ef maður hefði ekki vitað,“
sagði sá elzti á eftir, „að það
var presturinn sem var að boða
guðs heilaga orð, þá hefði mað-
ur velzt um af hlátri.“
Ef tímarnir væru ekki svona
alvarlegir, hvað þeir raunar hafa
verið síðan Adam og Eva voru
rekin úr paradís, yrði manni
kannski svipað á við að kynnast
ýmsum atriðum í Marshall-áætl-
unum hinna ýmsu Evrópulanda,
sem gerðar eru af fremstu f jár-
málasérfræðingum landanna, og
eru því fullgr af vizku og hag-
skýrslum. Þegar Marshallhjálp-
in hættir 1952, munu öll Mars-
hall-löndin samkvæmt hinum
upprunalegu áætlunum sínum
hafa náð jafnvægi í fjármálum
sínum með því einfalda og
snjalla ráði að koma á hagstæð-
um greiðslujöfnuði hvert víð
annað.
Marshalláætlanir hinna ýmsu
landa eru með öðrum orðum
samdar algerlega óháðar hver
annarri, og hin nauðsynlega
samræming er enn aðeins á
pappírnum. Með því að hag-
fræðingar eru yfirleitt jafngáf-
aðir og annað fólk, má væntan-
lega gera ráð fyrir, að þeir hafi
á þennan hátt stokkið yfir girð-
inguna þar sem hún er lægst,
ekki að því að þeir tryðu því,
að hinar upprunalegu áætlanir
myndu duga, heldur einungis til
að fá skjóta og fallega lausn,
sem hefði góð áhrif á Banda-
ríkjaþing. Það var sem sé