Úrval - 01.10.1954, Page 82

Úrval - 01.10.1954, Page 82
Anton Tjekov. Úr formála að „Three Plays“, Penguin Classics, eftir Elisaveta Fen. ANTON TJEKOV var þriðja barn hjónanna Paviels og Yevgheniu Tjekov, og átti tvo eldri bræður, Alexander og Nikolai. Hann var skírður 27. janúar 1860, tíu dögum efiir að hann fæddist. Seinna bættust ein systir og tveir bræður í barnahópinn. — Tjekov-hjónin hljóta að hafa átt erfitt með að framfleyta fjölskyldunni, því að börnin voru sex, og faðirinn sló slöku við starf sitt vegna áhugans, sem hann hafði á list- um. Paviel Tjekov var áreið- anlega gæddur listamannshæfi- leikum; hann lærði að leika á fiðlu tilsagnarlaust og var dá- góður málari. En listamanns- hæfileikar föðurins urðu börn- unum til tjóns, ekki aðeins vegna þess að hann vanrækti starf sitt, heldur einnig af því, að hann íþyngdi þeim óþarflega mikið. Hann hafði slíkan áhuga á kirkjutónlist, að hann lét syni sína syngja í kirkjunni, áður en þeir höfðu náð skólaskyldualdri (en á þeim tíma voru rússnesk börn skólaskyld 8 eða 9 ára gömul). Börnin voru rekin á fætur fyrir allar aldir og urðu að fara til kirkju í hvaða veðri sem var. Uppeldi barnanna var mjög strangt, enda minntist Tjekov þess síðar með beiskju, að faðir hans hefði hýtt hann þegar hann var strákhnokki. En hvaða á- hrif sem uppeldið hefur annars haft á skapgerð Tjekovs, þá bugaði það hann ekki og gat ekki kæft „neistann" í hon- um. Öllum þeim, sem ritað hafa ævisögu hans, ber saman um að hann hafi verið fjörmikill og glaðlyndur og afkastamikill svo af bar. Eitt af því fáa, sem var Tjekov-börnunum til ánægju, var stutt sumardvöl í stórum búgarði uppi í sveit, þar sem föðurafi þeirra var ráðsmaður. Þessi afi þeirra var að mörgu leyti merkilegur maður. Nokkr- um árum fyrir afnám bændaá- nauðarinnar í Rússlandi árið 1861, hafði hann keypt sér og sonum sínum frelsi, en einn af sonum hans var faðir Antons. Lausnargjaldið, sem hann varð að greiða húsbónda sínum, var 3500 rúblur, sem hann hafði sparað saman meðan hann var ánauðugur, og sýnir það eitt dugnað hans og þrautseigju. Þó að margt gengi á tréfótum í Rússlandi á síðasta helmingi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.