Úrval - 01.11.1954, Qupperneq 27
UM LÆKNINGAMÁTT DRAUMA
25
nægðri móðurhvöt, dreymir að
hún gangi upp stigann í húsinu
þar sem hún býr og er með
yndislega fallegt ungbarn í
fanginu. Hún hlakkar mikið til
að hafa það heima hjá sér. Þeg-
ar hún ætlar að opna hurðina
fær hún svima. Hún lítur á barn-
ið og sér þá, að það er ekki
barn heldur sóðalegur og Ijótur
kettlingur, og hún fleygir hon-
um frá sér. Ef hún hefði vakn-
að með þá sælukennd sem því
fylgdi, að vera með barnið í
fanginu, mundi það hafa verið
sárt fyrir hana að koma aftur
til veruleikans. En að vakna við
það að vera með ljótan kettling
í fanginu var léttir. Draumur-
inn minnir á söguna um refinn
og súru berin. En ef við hefð-
um ekki hæfileika refsins til að
gera lítið úr því sem er eftir-
sóknarvert en ekki er hægt að
öðlast, mundi lífið verða okkur
allmiklu þungbærara en það er.
Nýkvæntur maður lenti í mik-
illi freistingu. Á skrifstofuna
þar sem hann vinnur kemur ung
og falleg stúlka, sem flestir karl-
menn á skrifstofunni verða
hrifnir af. Hann kynnist stúlk-
unni og gengst mikið upp við
það, að hún virðist taka hann
fram yfir aðra. Hann á í sífelldri
baráttu við þá freistingu að
bjóða henni út til að kynnast
henni betur. Eiginkonan fer að
fara í taugarnar á honum. Hann
vaknar nótt eftir nótt við það
að honum finnst hann vera í
faðmlögum við stúlkuna. Eina
nótt dreymir hann að hann komi
inn í skrifstofuna og sér þá
að ungfrú A liggur nakin á legu-
bekknum. Hann verður gripinn
trylltri ástríðu, afklæðir sig og
ætlar að leggjast hjá henni. En
þegar hann kemur nær, upp-
götvar hann, að þetta er bróðir
hans. Hann fyllist viðbjóði og
vaknar. Hefði hann vaknað með
myndina af nakinni stúlkunni í
huganum, mundi það hafa
magnað ástríðu hans og fært
hann nær freistingunni. En
minningin um bróðurinn á legu-
bekknum kælir í honum blóðið,
að minnsta kosti fyrst á eftir.
Smám saman missir hann áhUg-
ann á ungfrú A, en hann setur
það aldrei í samband við draum-
inn um bróðurinn.
Hið dulvitaða, sem speglast í
draumum okkar, styður á virk-
an hátt meðvitaðar tilraunir
okkar til að losna úr viðjum. Sá
sem lærir að skilja mál draum-
anna, getur þannig sótt hjálp
til draumalífsins í baráttu sinni
til að losna við sársaukafullar
hugmyndir og áhrif þungbærr-
ar reynslu. Draumurinn vísar
okkur þann veg til lausnar, sem
okkur hentar bezt. Ógifta, barn-
lausa konan, sem fyrr var frá
sagt, var þrátt fyrir allt sann-
færð um það undir niðri, að hún
þyrfti ekki að taka sér það mjög
nærri þó að hún yrði ekki móðir.
Sálin hefur sín ráð til að
lækna sig þannig, að aðlögun
okkar að lífinu verði sem bezt.