Úrval - 01.11.1954, Side 58

Úrval - 01.11.1954, Side 58
56 ÚRVAL okkar hafa tekið upp á að end- urgjalda heimsóknirnar. Við höfum lært að njóta samvist- anna í stað þess að kvíða fyrir erfiði og kostnaði sem þær höfðu áður í för með sér. „Boð- um“ hefur fækkað, þó að enn brjótum við brauð saman — án alls undirbúnings. - Ýmis atvik hafa komið fyrir, sum vandræðaleg og önnur brosleg. Börnin hafa bæði ver- ið til ánægju og ama; nokkur gólfteppi, veggir og garðar hafa látið á sjá. En ávinningarnir hafa verið miklu fleiri og meiri. ,,Ó, heimilið mitt!“ hrópaði Polly þegar við komum fjögur óboðin og að því er virtist ó- velkomin. Hún fór á undan okk- ur inn, ruddist í gegnum brot- in leikföng, reisti við fallinn stól og strauk úfið hárið frá enninu. ,,Við komum til að hitta ykkur Jón, en ekki til að sjá heimilið," sagði konan mín vin- gjarnlega. Þegar Polly hafði náð sér eftir undrunina, áttum við sam- an einkar ánægjulega stund. Og þegar við fórum sagði hún: „Ég skal segja ykkur: ég hef ekki í marga mánuði haft svona mikla ánægju af gestakomu. Venjulega er svo mikið erfiði og umstang að búa sig undir að taka á móti gestum, að þegar þeir koma er ég of þreytt til þess að njóta samvistanna við þá.“ Þessi hlýju orð hennar hafa styrkt okkur í þeirri trú, að þessi venjubreyting okkar væri rétt. Næstum hver heimsókn hefur orðið okkur að einhverju leyti lærdómsrík. Ég hef oft komið að húsbóndanum þar sem hann var að gera við lek- an vatnshana, bilaða ryksugu eða garðsláttuvél og orðið margs vísari með því að bjóða honum aðstoð mína. Konan mín hefur á sama hátt lært ýmis- legt, sem henni varð síðar að gagni. Við uppgötvuðum, að ástæðu- laust var að óttast, að við yrð- um til að raska ráðagerðum þeirra, sem við heimsóttum. Hvað hefur þú nýskeð ráðgert þér til dægrastyttingar, sem ekki verður ánægjulegra, ef einhver vinur kemur og gerist þátttakandi í því? Bezt er þó fyrir þá, sem vilja endurvekja þessa fornu dyggð, að vera við ýmsu búnir. Hér er þá fyrst ein aðvörun: Eng- inn skyldi taka upp þennan sið, sem ekki hefur sanna ánægju af samneyti við annað fólk og ekki er reiðubúinn að fórna öðrum nokkru af tíma sínum. Því að vinirnir munu án efa endurgjalda heimsóknirnar. Hyggilegast er einnig að vera við því búinn að illa standi á. Ekki fer hjá því, að þið hring- ið einhvern tíma dyrabjöllu þeg- ar f jölskylduerjur eru uppi, heimilið er í upplausn, fjöldi ættingja í heimsókn o. s. frv. „En hvað börnin eru orðin
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.