Úrval - 01.11.1954, Side 70

Úrval - 01.11.1954, Side 70
68 ÚRVAL birta af degi þegar ég sofnaði. Þá hafði ég ekki aðeins viður- kennt fyrir sjálfum mér að ég væri afbrýðisamur, heldur einn- ig fundið einhverja undarlega nautn í að kvelja sjálfan mig með þessari nagandi ástríðu. Ég lagði kaldur á ráðin um það hvernig ég gæti fengið svar við öllum spurningum mínum. Hafði hún verið með fleiri mönn- um? Var ég, maðurinn hennar, aðeins einn af mörgum elskhug- um? Var játning hennar í nótt aðeins kænskubragð vergjarn- ar konu, uppfundið til þess að telja mér trú um, að hér hefði aðeins verið um eina meinlausa hrösun að ræða? Var hún í raun og veru hjá vinkonum sín- um þau kvöld sem hún sagðist vera þar ? Hvað vissi ég um það! En ég skyldi komast að því. Hún skyldi ekki fara á bak við mig. NIÐURLÆGINGU minni og nagandi ótta næstu mánuði fá engin orð lýst. Öðru hvoru rofaði til í huga mínum og ég sá hve hegðun mín var vitfirr- ingsleg. En þær stundir voru skammvinnar. Afbrýðisemi mín knúði mig til að leika tveim skjöldum, af svo kaldrifjaðri lævísi, að Margaretu grunaði aldrei neitt. Þegar ég nú hugsa aftur til þessa tíma, er mér með öllu ó- skiljanlegt hvernig afbrýðisem- in gat gjörbreytt mér svo, að ég blygðaðist mín ekki fyrir að beita hinum andstyggilegustu brögð- um. Ég lá á hleri þegar Marga- reta talaði í símann, ég leitaði í handtöksunni hennar og skrif- borðskúffunum, einkabréf henn- ar opnaði ég með gufu. Þegar hún fór að heiman, fann ég alltaf einhver ráð til að kom- ast að því hvort hún færi þang- að sem hún sagðist ætla. Eg veitti henni jafnvel eftirför, ef ég gat það ekki með öðru móti; læddist eins og hundur á eftir henni. Þegar ég fann enga sönn- un þess að hún væri mér ótrú, efldi ég aðeins njósnir mínar. Á þennan hátt knúði hin vit- firringslega martröð mig æ lengra burt frá heilbrigðri skyn- semi og dómgreind. Stundum varð mér ljóst, að þetta hlyti að enda með skelfingu, en ég hafði ekki lengur neinn hemil á þess- ari gandreið. Það voru liðnir sex mánuðir frá „játningu“ Margaretu þegar hin skelfilega nótt kom. Næt- urnar á undan hafði ég legið andvaka í rúminu. Líkami minn var örmagna, tilfinningalíf mitt á tætingi vegna þeirrar djöful- legu ástríðu sem hafði altekið mig. Margareta var ástleitin þetta kvöld. En mér mistókst. Líkami minn hafði nú einnig glatað hæfileikanum til að elska hana. EGAR andardráttur hennar var orðinn djúpur og róleg- ur, læddist ég fram úr rúminu.
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.