Úrval - 01.02.1955, Side 11

Úrval - 01.02.1955, Side 11
SIÐGÆÐI ÁN TRÚAR 9 skoðun er öll heg'ðun eigingjörn. Ef við hjálpum náunga okkar, gerum við það einungis af því að við höldum, að það fái hann til að hjálpa okkur seinna. Á hinu leytinu eru svo skoðanir, sem Rousseau barðist mest fyr- ir, að maðurinn sé í eðli sínu ósérplæginn og samvinnuþýð- ur; ef hann sé öðru vísi, stafi það af því, að eðlilegum þroska hans hafi verið spillt. „Mað- urinn“, sagði Rousseau, ,,er í eðli sínu góður. Það er aðeins þjóðfélagið, sem gerir hann vondan.“ Hvorug þessara andstæðu öfga er rétt. Sannleikurinn ligg- ur á milli þeirra. Þó að það sé engin djúpstæð vizka, liggur beint við að segja, að mannlegt eðli sé allmjög blandið. Okkur er eðlilegt að vera að miklu leyti eigingjörn, óvinveitt og andsnúin fólki, sem hindrar okkur í að fá vilja okkar fram- gengt. Okkur er einnig eðlilegt að sýna öðrum samvinnulipurð, finna til velvildar og samúðar gagnvart þeim. Með tæknilegra orðalagi getum við sagt, að við höfum bæði sjálfshugðir og fé- lagshugðir. Vel má segja, að menningin sé undir því komin, hversu tekst að víkka svið fé- lagshugðanna. Frumstæði mað- urinn er samvinnuþýður innan fjölskyldu sinnar eða ættbálks og hneigist til að líta á alla óviðkomandi sem óvini. Hinn menntaðasti maður finnur skyldleika sinn við gjörvallt mannkyn. Nánar get ég ekki rætt þetta hér. Eitt er þó alveg víst. í öliu samlífi, en einkum þó í því mjög skipulagða þjóðfélagi, sem við búum í, er æskilegt að félagshugðirnar séu vel þrosk- aðar, en sjálfshugðunum hald- ið nokkuð í skefjum. Menning- arlega séð er bezt að líta á sið- ferði og siðareglur sem skipu- lagðar tilraunir til að glæða fé- lagshugðirnar. Ein frumregla er sameiginleg öllu siðgæði, hvar sem er í heiminum og hversu ólík sem þjóðfélögin kunna að vera. Eitt siðaboðorð viðurkenna allir, jafnt mannæt- ur suður á Borneo og Jesúita- prestar: „Við megum ekki vera algjörlega eigingjörn. Við verð- um að vera þess albúin að geta stundum látið hag fjölskyldu, vina eða þjóðfélags ganga á undan eigin hagsmunum.“ Þetta þýðir þó ekki það, að við eigum alltaf að vera að fórna okkur fyrir aðra: við höf- um einnig skyldum að gegna gagnvart okkur sjálfum. En kjarni menningarlegs siðgæðis er óhlutdrægni: Það að láta ekki eigin óskir og áhugamál gera okkur blind fyrir þörfum annarra. Hin fræga saga af Sir Philip Sidney í Zutpen er göf- ugt fordæmi. Þó að hann væri helsærður og þjáður af þorsta, rétti hann vatnsbikarinn, sem honum var fenginn, að enn særðari manni og sagði: „Vin- ur, þörf þín er meiri en mín.“
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Úrval

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.