Úrval - 01.02.1955, Page 15

Úrval - 01.02.1955, Page 15
SIÐGÆÐI ÁN TRÚAR 13 Þau kæra sig ekki um að þurfa að ráða öllu sjálf. Aginn má ekki vera óhóflegur. Við vilj- um ekki bannið bannsins vegna. Hann má heldur ekki vera handahófskenndur. Gagnslaust er að banna eitt í dag og leyfa það síðan á morgun. En um- fram allt verður hann að hald- ast í hendur við ástúðina. For- eldrar ættu aldrei að segja: ,,Ef þú gerir þetta, þykir mér ekki lengur vænt um þig“ eða ,,ef þú gerir þetta, ertu ekki litli drengurinn minn.“ Barnið má aldrei finna, að foreldraástin sé á einhvern hátt skilorðsbundin. Eins og ég hefi sagt: Aldrei má hvarfla að því að efast um, að það sé elskað og þráð. Miklu minna gerir flenging- in barni til en að segja því, að manni þyki ekki lengur vænt um það. Ekki er ég þó bein- línis að mæla flengingum bót, en það er ég viss um, að ótti sumra við þær er alveg ástæðu- laus. Ef barnið treystir því fyllilega, að mömmu og pabba þyki vænt um það, gerir smá- vegis flenging því ekkert mein, eða eins og eitt áhyggjufullt foreldri sagði einu sinni við mig: „það getur gert þeim flengda stórgreiða.“ Hástemmd- ir og sífurgjarnir foreldrar, sem hryllir við að heyra fleng- ingu nefnda á nafn, veita stund- um andlega refsingu, miklu þungbærari en hina, með því að gerast harmþrungnir og á- hyggjufullir, ef barnið þeirra hagar sér illa, og með því að nota setningar sem þessar: ,,Ég skammast mín fyrir þig. Þú veldur mér vonbrigðum“ o.s. frv. Þetta ætti aldrei að segja við barn. Það er ekki eins slæmt og ,,mér þykir ekki lengur vænt um þig,“ en söm eru áhrifin: Það veikir traust barnsins. Þar með er ekki sagt, að við eigum aldrei að láta okkur mis- líka framferði barnsins. En — og hér komum við að veiga- miklu atriði — við eigum að fordæma misgerðirnar, en ekki barnið. Ef það gerir eitthvað ljótt, borðar t.d. allt sælgæti bróður síns ásamt sínu eigin, er hægt að segja sem svo: „Þetta var nú ljótt. Það er ekki líkt þér að gera þetta“, í stað þess að segja: „Þú ert ljótur, gráðugur strákur." Merkingin er kannski nokkuð svipuð, en í augum barnsins er hér um reg- in mun að ræða. Tími minn er á þrotum, og hinn trúaði hlustandi er sjálf- sagt orðinn óþolinmóður. „Þetta er nú allt saman gott og bless- að“, segir hann ef til vill, „en samt vantar aðalatriðið. Hver er lokatilgangur allrar þessarar siðgæðisþjálf unar ? Hverju mynduð þér svara, ef barnið spyrði: „Hvers vegna á ég að taka tillit til annarra? Hví skyldi ég ekki vera algjörlega eigingjarn ?“ Hvaða svar er til annað en þetta: „Af því að það er Guðs vilji.“ Þetta er ein af lokaspurning-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.