Úrval - 01.02.1955, Page 24

Úrval - 01.02.1955, Page 24
22 tJRVAL „Það er ólán velvöxnu nútíma- konunnar. Hún sýnist vera of holdug. Mig langar til að teikna yður.“ Hann hafði tekið upp teikni- bókina og teiknað nokkrar skyndimyndir af henni. Seinna hafði hann sýnt henni fáeinar myndir, sem hann hafði gert. „Ég hef haft sjö fyrirsætur — en engin þeirra hefur dugað.“ „Hvað eruð þér að teikna?“ spurði hún forvitin. „Það er eins og þér séuð að mála mynd fyrir það opinbera . . .“ „Það er rétt. I rauninni má enginn vita það, en ég skal segja yður frá því. Ríkisbankinn hefur falið mér að teikna nýj- an þúsund króna seðil, og ég býst við að eftirmyndir komi til með að verða eftirsóttari en frummyndin. Og konan gegnir þýðingarmiklu hlutverki í mynd- inni. Hún á að tákna andann, mannsandann, sem er æðri en náttúran og menningin. Þér væruð einmitt rétta fyrirsæt- an!“ „Ég hef aldrei verið fyrir- sæta.“ „Það gerir ekkert til. Annars er verkið vel borgað. Ég gæti haft Rómarferð upp úr því, og ég skal líka borga yður vel. Já, mér er víst óhætt að segja það. Þér safnið víst ekki auði hjá Abelin ?“ „Ég veit ekki hvað segja skal. Ég fæ meira en ég á skilið. En . . . ef ég hjálpaði yður, þá gerði ég það með því skilyrði að þér reynduð aldrei að komast að því hver ég er. Og ef þér komist að því, þá verðið þér að lofa að segja aldrei neinum frá því. Ég er nefnilega gift. Og ég býst við að maðurinn minn kærði sig ekki um það.“ „Ég lofa því. Að sjálfsögðu er þetta óviðkomandi einkalífi yðar. Ég lít aðeins á yður sem fyrirsætu." „Ég skil það,“ sagði hún hlæjandi. „Ekki fullkomlega, býst ég við,“ sagði hann. „Það eru ekki aðeins línur og hlutföll líkam- ans, sem ég hef áhuga á — það er dálítið annað líka. Það er sálin . . . hvemig á ég að koma orðum að því . . . andinn, sem þér geislið frá yður. Ég ætla að reyna að ná honum og gefa honum eilíft líf. Þetta eru engar ýkjur. Það eru áreiðan- lega ekki mörg listaverk, sem verða eins vel geymd og þúsund króna seðlarnir mínir. Aldrei hefur neinn verið jafn kvíða- fullur út af verki listamanns og Ríkisbankinn er út af mínu verki. Þó að ég skreppi ekki burt nema í nokkra daga, verð ég að læsa teikningarnar inni í geymsluhólfi bankans . . .“ Hann sagði henni heimilis- fang sitt, og nokkrum dögum seinna var hún á leiðinni upp stiga í húsi einu í gamla bæj- arhlutanum. Hún vissi að mað- urinn hennar átti húsið, en hún hafði aldrei komið þangað fyrr. Stiginn var dimmur og
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.