Úrval - 01.02.1955, Page 32

Úrval - 01.02.1955, Page 32
30 ttRVAL fleygt í gin vítishundsins. En stæðist hinn látni prófið, átti hann ekki annað eftir en að finna Ka, hinn ósýnilega tvífara sinn, að hann gæti tekið sér bólfestu í honum og lifað áfram meðal guðanna, gæddur mýkt og lipurð æskumannsins og vizku öldungsins. En til þess að Ka gæti þekkt hinn látna, var nauðsynlegt að hann slyppi ó- breyttur gegnum dánarríkið —■ og þessvegna voru líkin smurð og urðu Egyptar miög leiknir í þeirri list. I ljósi þessara hugmynda um lífið eftir dauðann er skiljanlegt hversvegna allir pýramídarnir eru á vesturbakka Nílar — þeim megin sem sólin sezt. Aftur á móti voru eingöngu tæknilegar ástæður til þess, að þeir eru all- ir skammt frá ánni. Níl var eina samgönguleiðin og um hana voru steinblakkarnir fluttir. Kú- fúpýramídinn mun hafa verið um 400 m frá ánni þegar hann var reistur. Þess þurfti vand- lega að gæta, að neðanjarðar- grafhýsin lægju hærra en hæsta vatnsborð árinnar. Þessvegna var þeim komið fyrir á klöppum, þar sem ekki var hætta á að vatn kæmist að. Klöppin, sem Kúfúpýramídinn stendur á, er um fimm og hálfur hektari. Hana hafa hinir gömlu egypzku byggingarmeistarar heflað þannig, að hún er eins og dansgólf. Svo nákvæm er þessi sléttun, að hæðarmunur er hvergi meiri en 1,5 sm. Svo lá- réttan flöt hefur aðeins verið unnt að gera með því að hafa vatnsflötinn sem hallamæli, þótt ekki sjáist þess nú merki, að veitt hafi verið vatni yfir klöpp- ina. Meðan þessi nákvæmnisvinna stóð yfir, var unnið að því að höggva til steinblakkirnar í kalksteinsnámunum hinum meg- in árinnar. Tiltölulega auðvelt hefur verið að brjóta kalkstein- inn. Egyptar urðu einna fyrst- ir til að gera sér ágæt verkfæri úr kopar, m. a. meitla og sagir. Auk þess er talið, að þeir hafi notað blautan kvartssand við sögunina. Til að kljúfa notuðu þeir tréfleina. Voru þeir reknir þurrir í meitlaðar holur og síð- an vættir þannig, að þeir bólgn- uðu út og sprengdu sundur klöppina. Erfiðara hefur það verið í granítnámunurn suður hjá Assúan, þar sem gerðar voru súlur, þrep og bitar — og stundum ytri kistur. Að öllum líkindum hafa þeir brotið gran- ítið með því að kynda bál á klöppunum og snöggkæla þær með því að hella á þær vatni; við það hafa þær sprungið. Meðalþyngd steinblakkanna í Kúfúpýramídanum er þrjú og hálf lest, en sú stærsta, sem er í lofti grafhvelfingarinnar, er eins og áður segir, 50 lestir. í öðrum byggingum hafa menn rekizt á kalksteinsblakkir, sem ætla má að vegi um 200 lestir. Af mynd, sem sýnir 88 menn í fjórum röðum vera að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.