Úrval - 01.02.1955, Page 40

Úrval - 01.02.1955, Page 40
38 ÚRVAL með þeim við það að blessun hjónabandsins hefur fallið þeim í skaut; og rekist maður á hinn breytta æskufélaga á simnudagsferjunni til Kaup- mannahafnar, sitjandi milli glaðlegrar eiginkonu og mas- andi tengdamóður og sötrandi te úr bolla, sæll og ánægður á svip — þá er vissulega sem við manni blasi heimur krafta- verkanna. Þó koma fyrir augnablik hjá þessum lukkunnar pamfílum þegar sálir þeirra virðast engj- ast og sprikla órólega, þegar sú hamingja sem þeir hafa glefsað eftir og japlað á situr allt í einu eins og öngull í koki þeirra og þegar þeir þrátt fyr- ir hlýjan hug og virðingu í garð veiðimannsins sem dró þá á land, verða gripnir ómót- stæðilegri löngun til að komast aftur í hið grugguga vatn sem þeir voru dregnir upp úr. Ég á hér alls ekki við misheppnuð hjónabönd, heldur aðeins þau sem eru eins velheppnuð og vænta má í ófullkomnum heimi; og sérstaklega hef ég þá í huga tiltekið og raunar ákaflega algengt atvik, sem ég hef stundum verið vitni að. Það er hið vandræðalega ástand, sem stundum skapast þegar eiginmaðurinn býður nokkrum æskuvinum sínum •— sem enn eru ókvæntir og bera því með sér öll einkenni svein- lífisins í háttum og tali — að ganga inn í helgidóm hjóna- bandssælunnar og eta þar og drekka með sér og hinni ungu konu sinni. Innan stundar er þá sigið á veslings manninn þunglyndi, hann er eins og klofinn, því að tveir aðilar togast á um hann, aðilar sem þekkja hann frá tveim gjörólíkum hliðum. Hann getur ekki talað við konu sína eins og hann er van- ur í áheyrn hinna gömlu vina sinna, því að hann grunar að á bak við kurteislega fram- komu þeirra leynist dulin kald- hæðni; og hann getur ekki talað við vini sína á sama hátt og áður í áheyrn konu sinnar, sem ekki gæti tekið þátt í samræðunum þegar málefni bæri á góma sem hún þekkti ekkert til. Auk þess er hún ef til vill fíngerð og viðkvæm, vön því að í kunningjahóp hennar sé gætt fyllsta velsæmis í tali. En þegar þessi sundurleiti hóp- ur úr skuggaborgum sveinlífis- ins hefur fengið nokkrum sinn- um í glösin, er hætta á að sam- ræður þeirra renni sjálfkrafa í gamla farvegi og er þá ekki að sökum að spyrja, þeir fara að segja sögur, rifja upp gömlu ævintýri undir rós, skjóta inn í lítt prenthæfum athugasemd- um, og hrjóti þeim gróf áherzlu- orð af vörum bera þeir fram klaufalegar afsakanir, en konan verður óróleg og áhyggjufull og bros mannsins hennar verð- ur æ meira beggja blands. Án þess andrúmsloftið þurfi
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.