Úrval - 01.02.1955, Qupperneq 57
HOLLRÁÐ
55
]pví aðeins orðið honum að liði,
að trú mín á bata hans væri
óbifanleg. Á hverjum degi töl-
uðum við hjónin við hann í von-
glöðum tón og létum aldrei
heyra á okkur, að við vorkennd-
um honum. Við fengum hann
til að trúa því, að hann mundi
ekki alltaf þurfa að ganga með
•stoðir, en mundi brátt geta
hlaupið, synt og hjólað eins og
áður. Örvænting og vonleysi
náði aldrei tökum á honum, og
nú er hann orðinn heill heilsu.
Áhrif þau, sem líf eins manns
getur haft á líf annars eru óút-
reiknanleg. Orð móður minnar
og fordæmi hafa gefið mér
styrk, heima jafnt og í fjarlæg-
um löndum, og ég trúi því, að
þau geti hjálpað sérhverjum
þeim, sem vill muna þau og
fylgja ráðum þeirra.
o-o-o
T’rásagnir af visindalegum
athugunum og nýjungum —
í stuttu máli.
Úr „Magasinet".
Dularfullt tímaskyn.
Flestum mönnum er gefið
nokkurt tímaskyn, sem er mis-
jafnlega nákvæmt eftir því hver
maðurinn er. Svo virðist sem
það sé nákvæmast þegar vit-
undin truflar það ekki. Margir
vita af reynslu, að tímaskyn
þeirra er næsta ónákvæmt á
daginn þegar þeir eru vakandi,
en starfar aftur á móti af ó-
skýranlegri nákvæmni á nótt-
unni þegar þeir sofa. Þegar
þeir ætla í ferðalag þurfa þeir
kannski að vakna klukkan
fimm að morgni til þess að ná
áætlunarbíl eða lest — og það
bregst ekki að þeir vakni á til-
settum tíma, þó að þeir séu dag-
lega vanir að vakna minnst
tveimur tímum síðar. Hver er
þessi sérkennilega innri klukka,
sem segir þeim til um tímann
þegar mikið liggur við?
Þó undarlegt kunni að virðast
hafa dýr samskonar og raunar
oft miklu nákvæmara tímaskyn.
Til eru margar áreiðanlegar
heimildir um það, að hundar
hafi mætt af mikilli stundvísi
til að sækja börn í skóla í lok
skóladags. Hvort heldur er
í skammdeginu eða á björt-
um vordögum, þá mæta þeir á
réttum tíma við skóladyrnar.
Og til er áreiðanleg frásögn