Úrval - 01.02.1955, Page 73

Úrval - 01.02.1955, Page 73
LITLA SVEITAKIRKJAN 71. sókn nær borginni. Það er því ekki hægt að segja annað en að litla kirkjan væri mörgum til gleði. Hið eina sem skyggði á, var, að guðs orð skyldi ekki iaða að fleiri kirkjugesti. Kannski hefði gengið betur, ef boðið hefði verið upp á kaffi með kökum, eins og í fríkirkju- söfnuðinum. Hmandi kaffi með nýbökuðum bollum hefur meira aðdráttarafl en kirkja, jafnvel þó að hún sé nýendurbyggð. Það hefði átt að nota hluta af fram- lagi kirkjusjóðs til þess, þá hefði bakarinn einnig fengið sitt. Á hverjum laugardegi og sunnudegi mátti heyra kirkju- klukkurnar hringja. Tónn þeirra var grannur en fallegur og vakti guðrækilegar hugsanir, og var söfnuðinum til áminningar, að minnsta kosti um endurbygging- una. En Sjöberg gamli, hringj- arinn, var orðinn hrumur og átti erfitt með að komast upp í turn- inn. Og svo vildi hann fá hærri laun, eins og allir aðrir. Það var haldinn sóknarnefnd- arfundur hjá kaupmanninum, sem kom með þá tillögu, að yngri maður skykli ráðinn sem hringjari. Málarinn bað um orð- ið og sagði að unga fólkið hefði um svo margt annað að hugsa. — Á laugardögum eru pilt- arnir úti með stúlkunum sínum og á sunnudögum veit maður aldrei hvenær þeir vakna. — Já, og strákurinn minn er búinn að fá sér boga, sagði fiski- maðurinn, svo að hann hefur ekki tíma til að hringja kirkju- klukkunum. Þá kom hreppstjórinn með góða uppástungu: það kvað vera hægt að koma fyrir rafmagns- hringingu. Maður þrýstir bara á hnapp heima hjá sér og þá hringja kirkjuklukkurnar. — Ekki ósvipað þjófabjöllu, sagði fiskimaðurinn. En það var ekki skráð í fundargerðarbók- ina. Rafmagnsklukknahringingin kostaði mörg hundruð krónur. En menn hugguðu sig við, að þetta væri stofnkostnaður. Auk þess þyrfti nú ekki lengur að ganga á eftir Sjöberg gamla. Og það var ákveðið að málar- inn skyldi þrýsta á hnappinn, honum var bezt treystandi og' hann bjó næst kirkjunni. Málarinn þrýsti á hnappinn og klukkurnar hringdu, laugar- dag og sunnudag árið um kring. Já, og einu sinni kom það fyr- ir, að hinn granni tónn þeirra heyrðist snemma á þriðjudags- morgni. Þann dag var málarinn ekki eins áreiðanlegur og endra- nær og fiskimaðurinn hafði ver- iðhjá honum með slatta í flösku. Hringingin liafði verið merki til kaupmannsins um að koma með meira. Dag nokkurn dó einn hinna þriggja föstu kirkjugesta, og hinir tveir voru nú orðnir svo gamlir, að kirkjusókn þeirra gerðist æ strjálari. — Þetta er sorglegt ástand, sagði hreppstjórinn, eftir að
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.