Úrval - 01.02.1955, Qupperneq 77
Átalianlegt sjóslys með óvenju-
legum eftirmála —
Sextán fyrir borö.
Úr bókinni „Great Shipwrecks and Castaways11,
eftir Josepli Fulling Fishman og Vee Fishman.
4Ð MORGNI hins 13. marz
1841 losaði ameríska
skonnortan Wiiliam Brown land-
festar í Liverpoolhöfn og sigldi
hægt niður Merseyfliótið. Ferð-
inni var heitið til Philadelphia
— en skipið komst aldrei á á-
kvörðunarstað. Það var ekki fá-
títt á þeim tímum, að skip fær-
ust í hafi, en eftirköst þessa
sjóslyss voru með óvenjulegum
hætti, það spunnust út af því
ein sérstæðustu málaferli, sem
nokkru sinni hafa komið fyrir
ameríska dómstóia.
Með Brown voru 65 írskir og
skozkir innflytjendur, sem ferð-
uðust á 2. farrými. Skipshöfn-
in var 14 manns. Ólánið elti
skonnortuna frá fyrsta degi
ferðarinnar. Skipstjórinn,
George L. Harris, fyrsti stýri-
maður, Francis Rhodes, og ann-
ar stýrimaður, Walter Parker,
voru á einu máli um, að þeir
hefðu aldrei fyrr lent í þvílík-
um stormum og þokum og í
þessari ferð. Þrisvar tætti
stormurinn sundur hverja segl-
dulu sem uppi var. Hinn 19.
apríl, röskum fimm vikum eftir
að lagt var upp frá Liverpool,
skall á niðdimm þoka. Kulda-
nepjan sem fylgdi henni var að-
vörun til skipverja um, að ís-
jakar væru skammt undan.
Tveir menn voru hafðir á verði
í stafni. En undir miðnætti tairt-
ist fjallhár jaki fyrir stafni og
áður en tóm vannst til að snúa
skipinu rakst það á jakann með
miklu braki.
Harris skipstjóri gaf þeim
sem á vakt voru, skipun um
að lækka seglin og byrja að
dæla. Sjómaður kom upp á þilj-
ur með þá frétt, að þriggja feta
breitt og að minnsta kosti sex
feta hátt gat væri á kinnung
skipsins. Athugun sannfærði
Harris um, að viðgerð yrði ekki
viðkomið og að skipið mundi
sökkva. Þegar hann kom upp
á þilfar aftur, voru farþegarnir
komnir upp, skjálfandi af kulda
og hræðslu. Flestir höfðu verið
í fasta svefni, þegar árekstur-
inn varð og komu nú fáklædd-
ir upp, karlar á nærfötum og
konur í náttkjólum með kápur
eða sjöl á herðum. Stýrimenn-
irnir og tveir skipverja voru
að reyna að manna björgunar-
bátana tvo, sem um borð voru.