Úrval - 01.02.1955, Page 79

Úrval - 01.02.1955, Page 79
SEXTÁN FYRIR BORÐ 77 arbátnum var hræðileg. Lekinn var mikill og þurfti að standa við stöðugan austur. Dagsbirtan var til lítils léttis, því að nú tók að rigna og hvessa. Sjórinn í bátnum hækkaði og jók á skelf- ingu farþeganna. Rhodes kall- aði til Alexanders Holmes, eins skipverja, og þeir töluðustu við í hljóði. Holmes var þrekmenni og frábær sjómaður. Hann var einbeittur og æðrulaus í hverri raun. Farþegarnir horfðu kvíðafull- ir á hljóðskraf þeirra. Þeir höfðu getið sér til um merkingu hins orðfáa samtals skipstjórans og stýrimannsins um morguninn. Holmes kinkaði kolli við orðum Rhodes. Hann kallaði til James Murray, þeldökks sjómanns, er einnig var mikið þrekmenni, og þeir hvísluðust á. Svo heyrðu f arþegarnir Holmes segja: „Komdu, þetta verður að ger- ast.“ Sjómennirnir tveir þokuðu sér í áttina til Owens Riley, eins farþegans, sem lá frammi í stafni. Holmes sagði honum að standa upp. Riley hörfaði undan og greip í þóftu. „Hjálpaðu mér, ísabella," kallaði hann til frú Edgar, annars farþega, ,,í guðs- bænum segðu þeim að þyrma lífi mínu!“ Konan svaraði ekki. Maðurinn ákallaði fleiri um hjálp, en enginn svaraði. Holmes og Murray gripu Riley, losuðu um tak hans á þóftunni og drógu hann á fætur. Nærri lá að sviftingar mannanna hvolfdu bátnum. Loks hóf Holmes hann á loft og kastaði honum fyrir borð. Óp Rileys og skvampið þegar hann skall í sjóinn, bland- aðist hljóðum farþeganna. Svo hvarf maðurinn í djúpið. Næst kom röðin að George Duffee. Þeir félagar gripu hann. ,,Ég á konu og þrjú börn,“ sagði hann í bænarróm. „Hlífið mér þeirra vegna.“ En Holmes var harður eins og steinn og sagði rólega: „Það er ekki til neins, Duffee — þér verðið að fara líka.“ Aftur kom til sviftinga, það var æpt og konur grétu. Svo varð aftur hljótt. Næst kom röðin að James McAvoy, en hann baðst ekki griða. Hann sagði rólegur: „Gef- ið mér aðeins fimm mínútur til að biðjast fyrir.“ Að lokinni bæninni ljrfti hann höfðinu og sagði: „Ég er reiðubúinn.“ Holmes tók hann upp og varp- aði honum fyrir borð. Meðan þessu fór fram hafði Rhodes setið aftur í skut og starað fram fyrir sig. Holmes leit nú spyrjandi til hans eins og hann vænti frekari fyrir- skipana. Þegar þær bárust ekki, lagði hann hendur á James Black, annan farþega. En þá kallaði Rhodes: „Láttu hann kyrran; það má ekki aðskilja hjón.“ Holmes sleppti Black, en greip í handlegg Franks Askins, sem sat í miðjum bátnum ásamt systrum sínum, Mary og Allen.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.