Úrval - 01.02.1955, Page 94

Úrval - 01.02.1955, Page 94
92 ÚRVAL sem venjulega er kallað eigin- girni. Eigingirni er bjánalegt of- mat á sjálfum sér og tilraun til að afneita eða bæta upp skort á sjálfsvitund. Hún er ótti við eigin takmörk, eigið getuleysi, alveg gagnstætt því sem hún virðist vera. Eigingirni er veik- leiki, klædd í dulargervi styrk- leikans. Sama máli gegnir um hroka, drottnunargirni og bar- áttulöngun, þau eru merki um ótta einstæðingsins við einstæð- ingsskap sinn og óbærilegt úr- ræðaleysi. Oft er talað um ástleysið sem meginorsök mannlegs ófullkom- leika. Og með réttu. Ef rnaður aðeins telur sig ekki geta vakið hæfileikann til að elska með sið- ferðilegum áfellisdómum eða hugsjónafyrirmynd. Ef við í staðin fyrir orðið ástleysi setj- um skort á hæfileika til að elska, þá verður málið ljósara. Sjálfur er ég þeirrar skoð- unar, að leiðin fram á við liggi gegnum aukna sjálfsþekkingu. Gnothi seavton stóð meitlað yf- ir dyrum musterisins í Delphi. Þekktu sjálfan þig. Sannleikur- inn mun gera yður frjálsa. En að læra að þekkja sannleikann um sjálfan sig er þyngri þraut- in. Sá sem verður að byggja sjálfsvitund sína á afrekum, á vitundinni um dýrmæta eigin- leika sjálfs sín, eða vitundinni um það að öðrum standi ótti af honum eða dáist að honum, hann skortir kjark til að horf- ast í augu við nakið veiklyndi sjálfs sín. Hann verður að stjaka sannleikanum niður í dul- vitundina, og honum mun aldrei lánast að leysa þann vanda að breyta soranum í skíran málm, að þroskast frá því að vera persona, leikgríma, í það að verða persónuleiki í eiginlegri merkingu orðsins. 0-0-0 Spurull. Sveinn litli er fyrir löngu háttaður, en það er svo ótalmarg't, sem hann þarf að spyrja um. Lengi vel svarar móðir hans þolinmóð, en að lokum finnst henni nóg komið. „Nú vil ég ekki heyra fleiri spurningar i kvöld, Sveinn,,f segir hún ákveðin, „farðu nú að sofa." Sveinn lofar því. En von bráðar heyrist aftur innan úr barnaherberginu: „Mamma!" „Já, hvað viltu nú?“ „Má ég bara spyrja um eitt?" „Já, hvað er það?" „Er það satt sem Nonni sagði, að aparnir hafi fjórar hendur?" „Já.“ „Þegar litlu apabörnin biðja bænirnar sínar á kvöldin spenna þau þá greipar með öllum fjórum höndunum?" —■ Det Hele.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.