Úrval - 01.02.1955, Page 103

Úrval - 01.02.1955, Page 103
VETURSETA A SVALBARÐA 101 á hann. En hann kemur alltaf með mér, þegar ég fer að sækja vatn. „Veslings Mikkel,“ segi ég við hann. ,,Nú fer skapadægur þitt að nálgast. Eftir nokkra daga byrja refaveiðarnar; þeir sækj- ast eftir lífi þínu. Þeir flá af þér fallega skinnið þitt og setja í þig augu úr gleri, og svo verð- ur þú látinn hanga í einhverri verzluninni innan um þúsundir annarra dauðra hluta. Veiztu það, Mikkel, að það er svo mik- ið af tilbúnu glysi í heiminum, að fólk er hætt að taka eftir ljósinu, hvernig það kemur og fer, og hve rökkrið er töfrandi?" Allt í einu lítur Mikkel upp og starir á mig eins og hann væri að sjá mig í fyrsta skipti. Það er ógn og skelfing í stórum, grænum augunum. Hann hrekk- ur undan og hleypur burt, án þess að líta til baka. * Karlmennirnir eru við smíð- ar sínar í kofanum, en ég stend á þröskuldinum og horfi í suður- átt, þar sem ljósglæta sést á himninum. Sólin kemur hálf upp fyrir sjóndeildarhringinn og hverfur síðan. Klukkan er tólf á hádegi. Mig hryllir við þeirri tilhugsun, að nú hafi ég séð sólina í síðasta sinn á þessu ári. Ég flýti mér inn til karlmann- anna. „Þetta er rétt,“ segja þeir ró- lega. „Það er 16. október í dag og sólin sézt ekki aftur fyrr en 25. febrúar." Ég fer að reikna. Nóttin verð- ur þá 132 sólarhringa! Átökin milli dvínandi dags- birtunnar og vaxandi tungls- ljóssins skapa einkennilegar andstæður. I dag er himinninn uppljómaður af bláum bjarma hins horfna dags. í norðri ber rauðgulan mánann við skýja- þykkni. Norðurljósin líða yfir himininn, eins og endurspeglun frá fjarlægu báli. Tunglskinið og norðurljósin eru hlý saman- borið við kaldan bláma himins- ins. Hinn 20. október fara karl- mennirnir í leiðangur út með firðinum til þess að setja upp refagildrur. Ég fylgi þeim úr hlaði. Mér tekst að fá þá til að fara framhjá tíu fyrstu stöðunum, sem eru of hættu- legir fyrir Mikkel. En ég fæ ekki að fara lengra en að vatns- bólinu. Þeir veifa til mín í kveðjuskyni og segja mér að koma á morgun og taka „hann“ úr gildrunni. Eg held heim á leið döpur í bragði. Ég hef ekki skap í mér til að fara að sofa. Og enn and- styggilegra er að vakna í myrkr- inu morguninn eftir. Það hvín í vindinum, brimhljóðið berst neðan frá ströndinni, og ég segi við sjálfa mig, að nú sé Mikkel sjálfsagt dauður í gildrunni. Ég legg af stað út að vatns- bólinu, þegar ratljóst er orðið. Mér sækist ferðin seint. Það gengur á með éljum og brim-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.