Bókatíðindi - 01.12.2000, Síða 3
Efnisyfirlit
ókatíðindi 2000, þessi árlega bók um bækurn-
ar, hafa aldrei verið innihaldsmeiri. Bóka-
J J kynningum hefur fjölgað um rúm 12% og
beinar auglýsingar eru einnig fleiri. Aukningin er
mest í barnabókaflokkunum og þá fjölgar enn fræði-
bókum af ýmsu tagi, handbókum og öðrum sem
ekki teljast til fagurbókmennta.
Fjölgun vandaðra fræðibóka fýrir almenning er
áhugaverð þróun í bókaútgáfu síðari ára og kemur
þar margt til. Tækniþróunin hefur gert unnt að birta
fleiri og stærri myndir, teikningar, skrár og gröf án
þess að kostnaður fari uppúr því sem almenningur
ræður við og hækkað menntunarstig þjóðarinnar
hefur leitt fram bæði fleiri lesendur að fræðilegum
ritum og fleiri sórmenntaða höfunda sem kunna að
bera fram fræði sín í formi sem er skiljanlegt fyrir
hvern og einn. Áður var algengara að fræðimenn
miðuðu rit sín aðallega við aðra fræðimenn.
Vonandi bendir aukin barnabókaútgáfa til auk-
innar eftirspurnar og áhuga. Margsannað er að því
yngri sem börn kynnast og fá áhuga á bókum og
bóklestri því örari verður málþroski þeirra og því
auðveldara eiga þau með að tileinka sér efni náms-
bókanna síðar meir. í Bókatíðindum nú eru 162
kynningar á barnabókum og raunar kynntar 25
barnabókum betur því sums staðar er fjallað um
nokkrar bækur saman. Það er því úr nógu að velja
fyrir foreldra, afa og ömmur sem vilja stuðia að
þroska barnanna með góðum jólagjöfum.
Það er líka úr nógu að moða fyrir þá sem leita
góðra jólabóka fyrir sjálfa sig eða aðra, hvort sem er
á fræðasviði eða fagurbókmennta. Mörg þekkt skáld
og rithöfundar eru mætt með nýja bók þetta árið og
forvitnilegir ungir höfundar að stíga fyrstu skrefin.
Ævisögum og endurminningum hefur fjölgað frá í
fyrra og til hægðarauka hefur kaflinn „Fræði og
bækur almenns efnis“ verið stokkaður upp og flokk-
aðar sér bækur um ljósmyndir og listir annarsvegar
og með ættfræði og sögu og lýsingu héraða hinsveg-
ar, en áhugi á uppruna og ættum er greinilega vax-
andi með þjóðinni.
Um leið og óskað er gleðilegra bókajóla er minnt á
að góð bók er varanlegur gleðigjafi - hvenær sem er
ársins — og því gott að geyma Bókatíðindin til að
nota við bókavalið á komandi ári.
íslcnskar barna- og unglingabækur..2
I>ýddar barna- og unglingabækur.... .... 18
íslcnsk skáldvcrk .... 42
Þýdd skáldvcrk .... 66
Ljóð .... 86
Ljósmyndir og lislir 94
Fræði og bækur almcnns cfnis .... 98
lléraðslýsingar, saga og ættfræði....134
Ævisögur og endurniinningar.......... 139
(Jtgcfendur........................... 171
Tillaskrá............................. 173
BÓKATÍÐINDI 2000
Útgefandi: Félag íslenskra bókaútgefenda
Barónsstíg 5
101 Reykjavík
Sími: 511 8020, fax: 511 5020
Netf.: baekur@mmedia.is
Vefur: www bokautgafa.is
Hönnun kápu: Ólöf Erla Einarsdóttir,
2.árs nemandi
í grafískri hönnun, LHÍ
Ábm.: Vilborg Harðardóttir
Upplag: 104.000
F.h. Félags ísl. bókaútgefenda
Vilborg Harðardóttir
Happdrætti Bókatíðinda
Enn er efnt til bókahappdrættis í tengslum við
Bókatíðindi en happdrættismiðinn með númerinu
er nú á öftustu síðu ritsins, en ekki kápubaksíðu
eins og áður. Númerið er neðst til hægri á síðunni og
vinningsnúmerin birtast í dagbókum dagblaðanna í
desember og síðan á vefsíðu Bókatíðinda.
Umbrot og beint
á plötur (CTP): ÍP Prentþjónustan ehf.
Prentun: ísafoldarprentsmiðja hf.
Bókband: Flatey hf.
ISSN 1028-6748
Leiðbeinandi verð
„Leiðb.verð" í Bókatíðindum 2000 er áætlað
útsöluverð í smásölu með virðisaukaskatti.