Bókatíðindi - 01.12.2000, Síða 12
íslenskar barna-og unglingabækur
HNOÐRI LITLI
Anna Vilborg
Gunnarsdóttir
Hnoðri litli skríður úr eggi
við Tjörnina í Reykjavík.
Þar er margt sem vekur
forvitni lítils andarunga
en líka ýmsar hættur sem
þarf að varast. Og dag
nokkurn kemst Hnoðri í
hann krappan. Anna V.
Gunnarsdóttir segir sög-
una af Hnoðra í fjörugri
frásögn og fallegum
myndum sem munu
gleðja fuglaskoðara á öll-
um aldri.
20 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2087-7
Leiðb.verð: 1.490 kr.
HUNDAEYJAN
Lítið ævintýri um undrun,
frelsi og fyrirgefningu
Sindri Freysson og Halla
Sólveig Þorgeirsdóttir
Hér segir frá hundunum
á Krítey sem hafa stofn-
að leynifélag. Þeir vilja
ólmir komast til eyjunn-
ar þar sem allir hvuttar
eru frjálsir. Erkióvinur-
inn Níðingur leggur fyrir
þá snörur sínar en hund-
arnir deyja ekki ráða-
lausir því frelsisþráin er
sterkari en óttinn. Hug-
ljúf en um leið spenn-
andi saga fyrir 5-10 ára
fjörkálfa.
Hundaeyjan er fyrsta
barnabók Sindra. Hann
hlaut Bókmenntaverð-
laun Halldórs Laxness
fyrir íyrstu skáldsögu
sína, Augun í bænum og
ljóðabókin Harði kjarn-
inn var tilnefnd til Is-
lensku bókmenntaverð-
launanna árið 2000.
Hundaeyjan er ríkulega
myndskreytt af Höllu
Sólveigu Þorgeirsdóttur.
31 blaðsíða.
JPV FORLAG
ISBN 9979-761-02-4
Leiðb.verð: 1.980 kr.
ÍSLENSKU
HÚSDÝRIN l-lll
Hákon Aðalsteinsson
Brian Pilkington
„Feitir, saddir, litlir, latir
/liggja úti í kofa. / Ellefu
grísir út af flatir / í einni
hrúgu sofa.“ í þessum
þremur gullfallegu mynda-
bókum um íslensku hús-
dýrin yrkir Hákon Aðal-
steinsson léttar og gáska-
fullar vísur við heillandi
myndir listamannsins Bri-
ans Pilkingtons, myndir
af dýrunum sem öll börn
þekkja og þykir vænt um.
Þetta eru bækur sem eiga
heima hjá hverju ís-
lensku barni - bækur fyr-
ir börnin og foreldrana,
afana og ömmurnar, til að
lesa og njóta saman.
12 blaðsíður hver bók.
Iðunn
ISBN 9979-1-0385-X
/-0386-8/-0387-6
Leiðb.verð: 980 kr. hver.
Iðumi SlrlHiiulllr r. fíiil HrhlláHstan
Jólasveinumir
JÓLASVEINARNIR
Iðunn Steinsdóttir
Jólasveinarnir þrettán eru
á leið til byggða með poka
á bakinu — en það gengur
ekki alveg þrautalaust
fyrir þá að fóta sig í nú-
tímanum því þeir eru
samir við sig og ýmsar
freistingar verða á vegin-
um. Haldið þið til dæmis
að Pottasleikir geti stillt
sig um að gægjast ofan í
grautarpottana sem verða
á vegi hans? En krakk-
arnir sem bíða eftir að fá
eitthvað í skóinn sinn
eru fúsir til að hjálpa
jólasveinunum. Fyndin
og fjörug bók um ævin-
týri jólasveinanna, prýdd
fjölda frábærra mynda
eftir Búa Kristjánsson.
Bókin kemur hér í nýrri
útgáfu handa nýrri kyn-
slóð barna. Bók fyrir alla
sem setja skóinn sinn út í
glugga - eða gerðu það
þegar þeir voru yngri.
70 blaðsíður.
Iðunn
ISBN 9979-1-0404-X
Leiðb.verð: 1.980 kr.
10
JÓN ODDUR
OG JÓN BJARNI
MEIRA AF JÓNI ODDI
OG JÓNIBJARNA
ENN AF JÓNI ODDI
OG JÓNI BJARNA
Guðrún Helgadóttir
Bækurnar um þá bræður
Jón Odd og Jón Bjarna
eru einhverjar vinsæl-
ustu barnabækur sem
komið hafa út hér á
landi. Þótt þeir bræður
séu mestu prakkarar og
valdi fullorðna fólkinu
ýmsum skapraunum, eru
þeir vænir drengir með
gott hjartalag. Það hafa
allir gaman af þessum sí-
gildu sögum, jafnt börn
sem fullorðnir. Bækurn-
ar eru nú komnar í nýj-
um útgáfum.
92, 96 og 107 blaðsíður.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-0282-3
/-1206-3/-1272-1
Leiðb.verð: 1.889 kr. hver.
KÁRI LITLI OG LAPPI
Stefán Júlíusson
Myndskr.: Halldór
Pétursson,
Pétur Halldórsson
Kári litli og Lappi kom
fyrst út haustið 1938 og
hefur lifað með þjóðinni
í meira en sex áratugi.
Mun ekki ofsögum sagt
að þau kynni hafi ein-
kennst af vinsemd og
ánægju.
j