Bókatíðindi - 01.12.2000, Page 16
íslenskar barna-og unglingabækur
um dettur margt í hug og
framkvæmir flest af því
ásamt Orra prestsins og
Byssu-Jóa. Gallinn er sá
að sumar hugmyndirnar
eru alveg glataðar og þess
vegna kalla sumir hann
hrekkjusvín. Þessi bráð-
skemmtilega saga minnir
um margt á metsölubæk-
ur Kristínar Helgu um
Binnu enda engin furða -
Binna er nágranni Móa
við Silfurgötu og kemur
lítillega við sögu í prakk-
arastrikum hans. Margrét
E. Laxness skreytir bók-
ina bráðskemmtilegum
myndum.
197 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2096-6
Leiðb.verð: 1.990 kr.
C/uðjón Svctnsson
NÍLARPRINSESSAN
NÍLARPRINSESSAN
Guðjón Sveinsson
Myndskr.:
Erla Sigurðardóttir
Flóðhildur fagra fæðist í
Nílardalnum. Foreldrum
hennar, konungshjónun-
um á Vesturbakka, þykir
hún bera af öðrum ilóð-
hestameyjum og leggja
ofuráherslu á að finna
handa henni fegursta
prinsinn í víðri veröld.
Um svipað leyti kemur í
heiminn hvítur stjörnu-
fákur í stóði Ingólfs Arn-
arsonar uppi á Islandi og
er kallaður Prins. Þetta
fregna fuglar himinsins
og fréttin berst með flug-
hraði suður á Nílarbakka
þar sem dýralíf er fjöl-
skrúðugt. Doktor Dílkrók-
ur hefur ráð undir rifi
hverju og myndar harð-
snúna sendinefnd ásamt
Gráhegra, Saxa hamarháfi
og hópi hýena. Ekki reyn-
ist auðvelt að standast
þessu illþýði snúning
þegar það birtist við ís-
landsstrendur og verður
baráttan um prinsinn æsi-
spennandi.
Þetta einstaklega heill-
andi ævintýri ber í sér
drjúgan fróðleik um lönd,
dýralíf, þjóðtrú og að-
stæður fyrr á tímum.
Auðugt málfar höfundar
gæðir söguna dulmagni
og glæsilegar myndir full-
komna verkið.
72 blaðsíður.
Muninn bókaútgáfa
ISBN 9979-869-49-6
Leiðb.verð: 1.990 kr.
a>wsj\
þðrarinn Eldjárn
Sigrún Eldjárn
ÓÐFLUGA
Þórarinn Eldjárn
Myndskr.:
Sigrún Eldjárn
Oðfluga er einstæð ljóða-
bók handa börnum sem
leiftrar af fjöri og hug-
myndaauðgi. I ljóðum
Þórarins og myndum
Sigrúnar eru höfð enda-
skipti á veröldinni og
lesendur sjá óvæntar
hliðar á hversdagslegum
hlutum. Óðfluga hefur
verið ófáanleg um nokk-
urt skeið en er nú endur-
útgefin.
32 blaðsíður.
Vaka-Helgafell
ISBN 9979-2-1463-5
Leiðb.verð: 1.980 kr.
VALSEIR SKAGFJÖRB
SAKLAUSIR
SÓLARDAGAR
Valgeir Skagfjörð
Lúkas er 10 ára og frá-
brugðinn öðrum krökk-
um í útliti, með hrafn-
svart hár, brún augu og
'dökkur á hörund. En
hann er duglegur að
bjarga sér og þegar hann
tekur til fótanna stenst
honum enginn snúning.
Þessi fyrsta barnabók
Valgeirs Skagfjörð er
fjörug og skemmtileg en
vekur lesendur um leið
til umhugsunar um
stríðni og hvernig það er
að vera öðruvísi. Guðjón
Ketilsson myndskreytti.
138 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2058-3
Leiðb.verð: 1.990 kr.
—
Kaupfélag
Stöðfirðinga
Breiðdalsvík
S. 475 6671
SÁLMABÓK
BARNANNA
Bamasálmar og söngvar
fyrir heimili, skóla og
kirkjustarf.
150 söngvar eru í bók-
inni, þar af 33 nýir söngv-
ar.
184 blaðsíður.
Skálholtsútgáfan - útgáfu-
félag þjóðkirkjunnar
ISBN 979-9464-8-2
Leiðb.verð: 1.800 kr.
seinna lúkkið
SEINNA LÚKKIÐ
Valgeir Magnússon
Veruleiki íslenskra ung-
linga er oft hrárri og
hættulegri en margir
kæra sig um að vita. í
þeim heimi getur allt
komið fyrir alla og það fá
krakkarnir í fyrstu bók
Valgeirs Magnússonar að
reyna. En þeir búa líka
yfir þeim krafti og hug-
14