Bókatíðindi - 01.12.2000, Side 52
íslensk skáldverk
HEIMSINS
HEIMSKASTI PABBI
Mikael Torfason
Ovenjuleg og áleitin saga
um ást og ástleysi, kyn-
líf, sjúkdóma og dauða.
Snörp ádeila á nútíma-
samfélag eftir einn at-
hyglisverðasta og kröft-
ugasta höfund yngri kyn-
slóðarinnar.
Hér segir af Marteini
Mána, nútímamanni á
niðurleið. Hann er þriggja
barna faðir í Þingholtun-
um, hamingju- og örygg-
isfíkill, markaður af erf-
iðri bernsku. Foreldrar
hans eru af hippakyn-
slóðinni, en sjálfur til-
heyrir hann firrtri kyn-
slóð sem sífellt á að vera
hress og geysast eftir
framabrautinni í góðu
formi. En hann er ekki
þannig. Hvert á hann að
beina reiði sinni yfir
vondu hlutskipti?
Höfundur fer á kostum í
sögu sem er í senn fynd-
in, tregafull og beinskeytt.
196 blaðsíður.
JPV FORLAG
ISBN 9979-761-14-8
Leiðb.verð: 3.980 kr.
HEIMSLJÓS l-ll
Halldór Laxness
Heimsljós er ein ást-
sælasta skáldsaga þjóðar-
innar og hefur að geyma
margt af því fegursta sem
Halldór Laxness ritaði.
Sagan fjallar um ævi
skáldsins Ólafs Kárasonar,
lífsreynslu þess manns
sem er einna smæstur
meðbræðra sinna. Fegurð
og þjáning þessa lífs hefj-
ast upp í goðsögulegar
stærðir þótt sögusviðið sé
lítið sjávarþorp.
366 og 319 blaðsíður.
Vaka-Helgafeli
ISBN 9979-2-1441-4
/-1442-2
Leiðb.verð: 3.980 kr.
HÉR HLUSTAR
ALDREI NEINN
Sigurjón Magnússon
Fyrir þremur árum sendi
Sigurjón frá sér bókina
Góða nótt Silja og vakti
þessi frumraun höfundar
geysimikla athygli. Þótti
hér kominn fram
óvenjulegur höfundur
sem mikils mætti vænta
af í framtíðinni. Eftir
Hér hlustar
aldrei neinn
Sigurjón Magnússon í
þriggja ára bið kemur ný
og mögnuð harmsaga
fjölskyldu í Reykjavík.
Óhætt er að segja að með
þessari sögu skipi Sigur-
jón sér í hóp fremstu rit-
höfunda þjóðarinnar.
126 blaðsíður.
Bjartur
ISBN 9979-865-81-4
Leiðb.verð: 3.680 kr.
HVÍTA KANÍNAN
Árni Þórarinsson
Einar blaðamaður heldur
í sólarlandaferð með
Gunnsu dóttur sinni en
er rétt sestur í makind-
um með Jim Beam í kóki
þegar válegir atburðir
gerast. Það er upphafið
að æsispennandi og
martraðarkenndri at-
burðarás þar sem enginn
og ekkert er eins og sýnist.
Þetta er sjálfstætt fram-
hald bókarinnar Nóttin
hefur þúsund augu sem
kom út 1998, í senn
spaugileg lýsing á ís-
lenskum ferðalöngum og
áhrifamikil sakamálasaga
um skelfileg myrkraverk
og ranghverft mannlíf.
224 blaðsíður.
Mál og menning
ISBN 9979-3-2083-4
Leiðb.verð: 3.990 kr.
HVUNNDAGSHETJAN
Auður Haralds
Þessi berorða, skarp-
skyggna og bráðfyndna
saga af hetjunni sem fann
þrjár óbrigðular aðferðir
til að eignast óskilgetin
börn er nú endurútgefin
eftir tvo áratugi. Bókinni
var þó ekki ætlað að
koma aftur út, heldur
skyldi hún standa sem
minnisvarði um úreltan
hugsunarhátt. Samt er
hér fátt sem lesendur nú-
tímans kannast ekki við
úr eigin ranni. Það fellur
líka seint á aðal þessarar
bókar — óbrigðula fund-
vísi Auðar á hræsni og
yfirdrepsskap og hæfi-
leika hennar til að lýsa
honum svo úr verður
konungleg skemmtun.
290 blaðsíður.
Forlagið
ISBN 9979-53-417-6
Leiðb.verð: 1.599 kr.
50