Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 7

Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 7
ing alls tiltæks mannafla komi til móts við kröfu kvenna um jafnrétti við karla bæði til menntunar og starfa. Og konan veit vel, óháð þessu hagnýta sjónarmiði, að menntun eykur víðsýni og eflir persónuþroska, og til þess þroska á hún jafnan rétt og karlar. Menntunarkrafa kvenna er því á allan hátt í samræmi við samfélagsþróun og tíðar- anda. Sú menntun, sem nútímakonan keppir eftir, er jafnframt ætluð sem undirbúningur að vandasömu starfi. Hún vill fá að reyna á hæfni sína og finna til gleði yfir afrekum sínum, rétt eins og karlmaðurinn. Það er því bágt að sjá, hvað gæti hindrað framsókn konunnar til sambærilegrar afkastagetu og sömu starfsréttinda og karlmenn hafa, — ef ekki vceru þau ósýnilegu bönd, sem binda hana við vöggu barnsins. Þau tengsl ráða miklu um líf hennar allt og örlög. Þrátt fyr- ir nútímalegt hugarfar sitt, á konan örðugt með að losna við þann geig, að vaggan verði köld, ef hún hættir að sinna henni, og barn- ið muni þá sakna móðurhandarinnar mjúku, sem létti þunga dagsins af litlum herðum á svo undurljúfan hátt, að jafnvel tunga skáldsins fær því ekki lýst. Ollum má vera ljóst, að nútímakonan stendur hér frammi fyrir miklum vanda. Hún er tvímælalaust fær til flestrar þeirrar menntunar, sem karlar sækjast eftir; einnig getur hún unnið flest störf á við þá, ef hún fær að einbeita kröftum sínum óskiptum. En ef hún þarf að tvískipta sér, af því að hún sinnir móðurhlutverkinu jafnframt, svo sem henni er eðlislægt og áskapað, þá verð- ur öll aðstaða hennar örðugri. Það er ekki fágætt, að barn verði ungri konu, sem kepp- ir að æðri menntun, til mikillar hindrunar, og ekki gerir starf að námi loknu vægari kröfur. Vegna þessara örðugu aðstæðna er hætt við, að jafnréttið við karla til starfa gildi fremur að formi til en í reynd og fram- kvæmd. Þannig hefir það verið og er raun- ar enn jafnvel hjá þeim þjóðum, sem þó hafa komið lengst til móts við jafnréttiskröf- ur kvenna. III. Þessi vandi kvenna er um leið vandi þjóð- félagsins alls. Það er tímabært að gera sér grein fyrir því, með hverjum hætti hann verði leystur. Ef mæður eiga almennt að ganga að störfum utan heimilis, á sama hátt og karlar og hafa fulla samkeppnisaðstöðu við þá, þá þarf óhjákvæmilega að létta af þeim meginþunga uppeldisins. Við börnun- um yrði þá að taka fólk, sem hefði uppeldi þeirra að atvinnu. Uppeldisstarfið yrði þá unnið beint á kostnað og ábyrgð hins opin- bera og hver björgulega vinnandi kona yrði að leggja fram sinn skerf til kostnaðarins í formi skatta af tekjum sínum. Þetta er sú völ, sem hver einstök móðir og þjóðfélagið í heild stendur frammi fyrir. Ef þróunin leiðir til þess, að hið opinbera taki uppeld- ið alveg að sér og ræki hlutverk sitt vel, þá má gera ráð fyrir að gætt verði allrar reglu- semi, svo sem með næring og hreinlæti; en viðmótið yrði í flestum tilvikum fremur ópersónulegt, það yrði vaktavinna og fjölda- afgreiðsla, — í það myndi vanta þá hlýju og nærfærni, sem ástríkri móður er tamt að veita barni sínu, án þess hún viti af því sjálf eða geri sér grein fyrir, hversu mjög það þarfnast hennar. En börn þarfnast einmitt slíkrar hreiður- hlýju, einkum meðan þau eru ung, en raun- ar flest lengi fram eftir aldri. Þau þurfa að HEIMILI OG SKÓLI 51
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.