Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 42
hagslega, að til þess að ljúka myndinni, varð
ég að taka 100 þúsund króna lán út á hús-
eign mína. Undirbúningur að þessari mynd
hófst fyrir alvöru 1960 og myndatöku lauk
1961.“
Varð einhver ágóði af sýningu myndar-
innar?
„Já. Eftir fyrsta sýningarsumarið, var
búið að greiða allar skuldir hennar. Frá
upphafi var það ætlun mín, að ágóði mynda-
sýninga yrði notaður til þess að greiða götu
munaðarlausra barna og ungmenna. Um
haustið 1964 var svo samin skipulagsskrá
fyrir Hjálparsjóð œskufólks, staðfest af for-
seta Islands og síðar prentuð í B-deild
Stjórnartíðinda. Stjórn var kosin og skipuðu
hana þeir: Gunnar Guðmundsson skóla-
stjóri, séra Ingólfur Ástmarsson og ég.
Stjórnin er skipuð til fjögurra ára í senn og
hefur verið endurskipuð einu sinni.“
Hvenær var fyrst veitt úr sjóðnum?
„Árið 1964. Þá lánaði sjóðurinn 100
þúsund krónur til stofnunar fjölskylduheim-
ilis og veitti 7 börnum fjárstuðning.“
Hvað stendur í skipulagsskrá um fjárveit-
ingar úr sjóðnum?
„Þar stendur, að árlega megi veita í
styrki það fé, sem aflast og vöxtum af eign
sjóðsins.“
Hvernig horfir með fjármál sjóðsins?
„Fjár hefur verið aflað með sýningu
kvikmyndarinnar, tónleikum blindu bræðr-
anna úr Vestmannaeyjum, happdrætti, tón-
leikum í Háskólabíói og með sölu gjafa-
bréfa í sambandi við sýningar á myndum
úr „þorskastríðinu“, en þær hef ég sýnt og
Eiríkur Kristófersson skýrt.“
Er safnað á hverju ári?
„Eg hef farið árlega til fjársöfnunar síð-
an 1963. En í sambandi við tekjur sjóðsins,
86
má einnig geta þess, að ríkissjóður hefur
veitt sjóðnum styrk í þrjú ár. Fyrstu tvö ár-
in 100 þúsund krónur, en 200 þúsund á
þessu ári. Einnig hefur Reykjavíkurborg;
veitt 50 þúsund króna styrk í tvö ár. Þá hef-
ur sjóðurinn látið prenta minningarspjöld
og sala þeirra gefið lítilsháttar fé. Margar
og allmiklar gjafir hafa borizt. Við ferða-
lög til fjársöfnunar, hefur mér verið það
ómetanleg hvatning, hversu öll fyrirgreiðsla
hefur verið ljúf og örvandi. Það telst til und-
antekninga, ef tekið er gjald fyrir lán á sam-
komuhúsi og þess eru nokkur dæmi, að
greiðasölustaðir hafa ekkert tekið fyrir gist-
ingu og mat, jafnvel þó að ég hafi verið víð
fjórða mann.“
Hvað hafa margir fengið styrk úr sjóðn-
um?
„Alls 68 börn og mörg þeirra í meira en
eitt ár. Nokkur dæmi eru til þess, að sama
barnið hafi fengið styrk í 3—4 ár.
Á síðasta ári nutu 18 börn styrkja úr
sjóðnum og það, sem af er þessu ári, eru
þau 17.“
Hver er höfuðstóllinn?
„Um síðustu áramót voru eignir sjóðsins
tæplega 21/2 milljón og vona ég að um naestu
áramót nálgist hann 3 milljónir. Rétt er að
geta þess, að sjóðstjórnin hefur verið fast-
heldin á fé, en þó reynt að leysa vanda svo
sem mögulegt hefur verið. Fjárhæð styrkja
hefur oftast verið milli 10 og 30 þúsund.
Við þökkum Magnúsi upplýsingarnar og
óskum honum heilla í því göfuga og fórn-
fúsa starfi, sem hann á vafalaust enn eftir
að rækja um sinn. Hér eftir mun merkí hans
tæpast falla, þó svo fari einhvern tírrra, að
nýjar hendur haldi á lofti.
L Ú.
HEIMILI OG SKÓLI