Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 44
Jóhannes Gnðmundsson,
K E N N A R I
Ml N NINGARORÐ
Jóhannes Guðmundsson kennari á Húsa-
vík andaðist á Sjúkrahúsi Húsavíkur 30.
septmber sl. 78 ára að aldri.
Jóhannes var fæddur 22. júní 1892 að
Þórólfsstöðum í Kelduhverfi í N.-Þing. For-
eldrar hans vorn Guðmundur bóndi þar
Pálsson og kona hans, Sigurveig Jóhanns-
dóttir.
Jóhannes ólst upp hjá foreldrum sínum
til 14 ára aldurs, er hann missti móður sína
og heimilið leystist upp. Hann var alinn upp
við lítil efni en vandist snemma mikilli
vinnu og nægjusemi. Hann lærði það á
æskuárum sínum að gæta ítrasta sparnaðar
í hvívetna sem nauðsynlegt var, ef mögulegt
ætti að vera að komast til mennta en snemma
mun hugur hans hafa staðið til þess.
Hann er í vinnumennsku næstu árin og
keppir að því marki að safna sér fararefni,
og veturinn 1911—12 stundar hann nám í
Unglingaskóla Húsavíkur, er sveitungi hans,
Benedikt Björnsson, hafði stofnsett. Síðan
heldur liann til Akureyrar og sezt í Gagn-
fræðaskólann og lýkur þaðan prófi 1914.
A þessum skólaárum mun Jóhannes hafa
þroskað með sér þá hæfileika, sem voru
einkennandi í fari hans, hófsemi í hvívetixa
og tryggð við þær hugsjónir, er hann vildi
berjast fyrir.
Næstu árin er Jóhannes farkennari í Eyj.a-
firði og Kelduhverfi en 1917 ræðst hann
kennari við Barnaskóla Húsavíkur og jafn-
framt við Unglingaskóla Húsavíkur. Þá var
hann búinn að taka ákvörðun um sitt ævi-
starf. Hann kenndi við bamaskólann í 45 ár
og jafnframt við unglingaskólann í 15 ái'.
Jóhannes var frábærlega góður starfs-
maður. Samvizkusemi var honum í blóð
borin og mikil úrvekni. Hann setti sig ekki
úr færi við að kynna sér nýjungar í starfi en
hann var hreinskilinn og hreinskiptinrx og
galt varhug við mörgum nýmælum, sem oft
reyndust þá stundarfyrirbæri. En hann var
fróðleiksfús og víðlesinn og fylgdist vel með
til hinztu stundar. En trúmennsku hans var
viðbrugðið. Um miðbik starfsævi sinnar átti
hann við alvarleg veikindi að stríða. Þá var
furðulegt hve hart hann lagði að sér til að
sinna starfi sínu, og veit víst enginn nema
hans nánustu, hve sú barátta hefur veríð erf-
88
HEIMILI OG SKÓLI