Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 23

Heimili og skóli - 01.08.1970, Blaðsíða 23
Vorið góða. Hópvinna, 12 óra stúlkur. (Olíukrít, 100 sm. x 210 sm. Mest vatnsliti og olíukrít, einnig þekju- liti, klipppappír, svartkrít o. fl. Er nemendunum örvun í að sjá myndir sínar eða annarra sem veggskreytingu í shólanum? Tvímælalaust. Við höfum tekið þann hátt upp, að skreyta skólann myndum eftir börn- in, og þetta er þeim áriðanlega hvatning, enda er þetta þeirra hús, þeirra vinnustað- ur, þeirra annað heimili. Fléttarðu teiknikennsluna daglegri kennslu? Eftir því sem hægt er. Þau hafa teiknað efni úr náttúrufræði, íslandssögu o. fl., sem þau eru að læra þá stundina. Ekki má gleyma þjóðsögunum. Einnig er töluvert teiknað úr atvinnulífi bæjarins, auk þess, sem ímyndunaraflinu er gefinn laus taumur- inn, bæði í formi og litum. Hvernig skaparðu börnunum hugmyndir að teikningu? A ýmsan hátt. Ræði við þau í fyrstu, hvað þeim finnst nú skemmtilegast að teikna, og reyni þannig að koma þeim á sporið, leið- beini síðan um byggingu myndar og liti. Annars verður að fara varlega í að leið- rétta teikningar barna, svo ekki hljótist skaði af. Alveg sérstaklega gildir þetta um yngri börn. Fyrir mér er mestur vandinn þessi: Hvenær á að leiðrétta og lagfæra, hvenær ekki, hversu mikið eða lítið. Hefurðu notað lifandi fyrirmyndir við teiknikennsluna? Ekki er það nú mikið. Þó man ég mjög vel eftir því, að sl. vetur bað ég eina stúlku í bekknum, sem ég vissi að átti upphlut að hafa hann með sér. Hún klæddist honum hér í skólanum, og síðan sat hún fyrir á miðju gólfi, en börnin röðuðu sér í hring og teikn- uðu, og árangurinn varð góður. Einnig kem ég stundum með í skólann ýmsa hluti, blóm o. fl. sem börnin síðan teikna. Hvernig gefst að hafa hópvinnu í teikn- ingu? Mjög vel. Margar ágætis myndir hef ég fengið á þennan hátt. Þetta er tilbreyting, en hennar er þörf í allri kennslu, e. t. v. mest af öllu. Góðir nemendur hjálpa þeim, sem lakari eru, þeir aftur læra af hinum duglegri á ýmsan hátt. Þannig læra þeir að starfa saman að sameiginlegu viðfangsefni, og að taka tillit hver til annars. HEIMILI OG SKÓLI 67
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.