Heimili og skóli - 01.08.1970, Síða 16
Nýi mennta-
skólinn í
Kungalv.
ustii skólarnir á íslandi liafa fengið ein-
hverja leiðréttingu hvað þetta snertir. I
sænskum skólum eru föstum kennurum
ætluð vinnuherbergi og oftast 2—3 um
hvert. Þá er vinnuaðstaða í hluta af
kennarastofunum og er hún fyrst og
fremst ætluð stundakennurum.
4. Varla þarf að taka fram, að íþróttahús
og samkomusal er talið sjálfsagt að hafa
við alla nýja skóla. A síðari árum er
þetta teiknað með flestum íslenzkum
skólum, svo að væntanlega verður þarna
varla mikill munur á, þegar fram líða
stundir.
Margt fleira mætti vafalaust telja upp,
sem þeirra skólar hafa fram yfir þá ís-
lenzku, en þetta sýndist mér mest áberandi.
Miða ég þá við nýja skóla í báðum löndum.
Tví- eða þrísetning í skólana er óþekkt, enda
óframkvæmanleg, þar sem börnin eru sam-
fellt í skólunum og nokkuð fram yfir há-
degi, en eins og áður segir fá þau hádegis-
verð í skólunum. Víkingaskólinn er aðeins
dæmi um sænskan skóla og aðrir skólar, sem
við skoðuðum voru svipaðir að gerð, nema
ekki allir byggðir á einni hæð.
Nýi menntaskólinn í Kungalv.
í Kungalv var fyrir nokkrum árum reist-
ur nýr menntaskóli. Islenzku skólastjórun-
um var boðið að skoða hann og var varið
til þess tveimur klukkustundum. Skóli þessi
er einnig að nokkru leyti byggður sem bóka-
safn fyrir Kungálv, ásamt því að vera
menntaskóli fyrir um 900 ungmenni. Þeir
aðilar, sem stóðu að byggingu skólans voru
Kungálvborg og þéttbýlissvæðin í nágrenni
borgarinnar.
60
HEIMILI OG SKÓLI