Heimili og skóli - 01.08.1970, Qupperneq 46

Heimili og skóli - 01.08.1970, Qupperneq 46
legur og þætti mér næsta líklegt að vosbúð við vegalagnir á heiðum uppi hafi átt sinn þátt í því heilsuleysi er Jóhannes átti lengi við að stríða. Hér hefur þess ekki verið getið að Jó- hannes var trúmaður og kirkjurækinn mjög. Hann var spiritisti og sagði hann mér eitt sinn að andatrúin hefði bjargað sinni barna- trú á þeim árum sem efagirnin sækir mest að. Hann var jafnan leitandi að sannleikan- um og það var hans bjargföst trú að „sann- leikurinn“ myndi gera okkur frjálsa. Þetta var einkenni í fari hans, að þora að hafa skoðun og segja sannleikann umbúða- laust og af hreinskilni. Það atvikaðist svo, að seinustu árin sem Jóhannes kenndi, varð ég samstarfsmaður hans sem skólastjóri. Hann tók mér af drenglund og hlýleika og hafði auðsæan áhuga á því hvernig mér tækist til, nýliða í þessu starfi. Eg var gamall nemandi hans og hefur það ef til vill enn ýtt undir áhuga hans fyrir því hvernig mér farnaðist. Þau tvö ár, sem við störfuðum saman í barnaskólanum, verða mér rík í huga nú við fráfall hans. Til hans þurfti ég margt að sækja. Hann þekkti betur til flestra nem- enda en aðrir enda var þá varla nokkur inn- fæddur Húsvíkingur, sem hann hafði ekki kennt meira eða minna. Það kom ósjaldan fyrir er við vorum að ræða um einstaka nemendur í skólanum að Jóhannes skaut fram í: „Ég held ég muni nú eftir afa hans.“ Það brást ekki þessi síð- ustu ár frekar en endra nær, að Jóhannes væri kominn í kennslustofuna nokkru áður en kennsla skyldi hefjast til að sjá um að allt skyldi tilbúið fyrir starf dagsins. Eftir að hann lét af störfum við skólann vegna aldurs, áttum við langt og ánægjulegt starf saman fyrir barnastúkuna en það er erfitt að meta árangur slíkra starfa, kennslu og bindindisstarfa, en ef það er rétt hermt sem sagt hefur verið að Húsavík sé fremur bind- indissamur bær þá á Jóhannes á því mik- inn þátt. Þótt Jóhannes hafi átt við vanheilsu að stríða, þá var hann þó gæfumaður. Hann eignaðist hina ágætustu konu, Sigríði Sig- urjónsdóttur frá Garði í Húsavík, en þau voru gefin saman 12. nóv. 1922. Hún reynd- ist honum mjög dyggur og samhendur lífs- förunautur og hið trausta bjarg í veikind- um hans. Hún bjó honum gott heimili, sem lengst af var í Framnesi við Asgarðsveg. Þangað var jafnframt gott að koma. Hún lifir mann sinn ásamt börnum þeirra fjórum, en þau hafa átt miklu barnaláni að fagna. Börn þeirra eru: Sjöfn húsfreyja á Fjoll- um í Kelduhverfi, gift Héðni Ólafssyni, Sigurjón skólastjóri Húsavík, kvæntur Her- dísi Guðmundsdóttur, Ásgeir forstjóri Inn- kaupastofnunar ríkisins Reykjavík, kvænt- ur Sæunni Lárusdóttur og Gunnar Fáll deildarstjóri hjá Kaupfélagi Þingeyinga Húsavík, kvæntur Arnbjörgu Sigurðar- dóttur. Húsavík hefur nú á bak að sjá einum af sínum mætustu borgurum. En sú er lífsins saga að menn hverfa af sviðinu að loknu dagsverki. Ég held að Jóhannes hafi verið mjög sátt- ur við lífið hér á jörð og tilbúinn að mæta því handan grafar. Ég vil færa honum þakk- ir fyrir mjög góð störf í þágu skóla- og upp- eldismála á Húsavík og sérstakar þakkir fyrir góða og lærdómsríka samveru. Eftir lifandi eiginkonu hans, börnum og barnabörnum sendi ég mínar innilegustu samúðarkveðjur. Kári Arnórsson. 90 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.