Heimili og skóli - 01.08.1970, Qupperneq 47

Heimili og skóli - 01.08.1970, Qupperneq 47
TRYGGVI ÞORSTEINSSON, skólastjóri: Vettvangsskólar í borgum og bæjum erlendis er skipu- lagt nám fyrir börn og unglinga í því formi er kalla mætti „vettvangsskóla“. Þeim er þannig hagað, að nemendurnir dvelja, með kennurum sínum, við náttúruskoðun, leiki og íþróttir á einhverjum fögrum stað, utan þéttbýlis, þar sem aðstaða er góð til nátt- úrufræðilegra athugana og útilífs. Sumir borgarhlutar, eða skólahéruð, hafa eignazt nokkra slíka staði og lagt í mikinn kostnað til að gera þá svo úr garði, að þeir gegni hlutverki sínu vel. Aðrir not- ast við útileguskála ýmsra félaga eða önn- ur hús, sem hægt er að fá til afnota fyrir þessa starfsemi. Sums staðar kemur hver bekkjardeildin á eftir annari til þessara vettvangsskóla og er þá oft á staðnum umsjónarmaður, sem er gestunum til leiðbeiningar og aðstoðar í sambandi við alla skipulagningu þessarar námsferðar. Tilhögun dagskrár fer að sjálfsögðu eftir því hver staðurinn er, og á hvaða árstíma hann er heimsóttur, en veigamikill þáttur í vettvangsskólanum er náttúruskoðun og náttúrufræði auk fræðslu um gróðurvernd og búskaparhætti fyrr og nú. Ekki má held- ur gleyma sögu byggðarlagsins og þjóðsög- um þaðan. í „vettvangsskóla“ verður einnig að reyna dálítið á líkamlegt atgerfi og hæfileika til að bjarga sér þegar eitthvað reynir á. Vegna þess eru íþróttir, fjallgöngur, fræðsla í skyndihjálp og ferðatækni sjálf- sagðir þættir í skólastarfinu. Þótt í „vettvangsskóla“ sé stuðst við bæk- ur ætti ekki að stunda þar lexíulestur eða kenna með sama hætti og algengast er í skólastofum. Bækur eru hjálpartæki til „uppsláttar“, en ekki til að endursegja. Skólunum er ætlað mikið uppeldishlut- verk og kröfurnar í þeim efnum fara vax- andi samtímis því sem geta margra heimila til að annast þessa mikilsverðu skyldu fer minnkandi, meðal annars vegna þess að hús- mæður vinna mikið utan heimilanna, og fjölmiðlunartæki ásamt mörgu öðru, sem ekki þekktist fyrir fáum árum, eða áratug- um, hefur vaxandi áhrif á allt líf manna, bæði til ills og góðs. í vettvangsskóla, undir góðri stjórn, gefst gullið tækifæri til mikilla uppeldisáhrifa, auk þess, sem þar er auðvelt að opna augu æskunnar fyrir dásemdum náttúrunnar, og styrkja tengsl þeirra við land og þjóð. HEIMILI OG SKÓLI 91

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.