Heimili og skóli - 01.08.1970, Síða 51

Heimili og skóli - 01.08.1970, Síða 51
gripir drengjanna sjálfra. Þessum bátum var nú siglt á Hólavatni við mikinn fögnuð viðstaddra. Meðan kvöldvakan stóð yfir var undirbú- inn útileikur er fór fram við vatnið. Stund- um voru bátarnir einnig notaðir við þennan leik. Allir voru í flotvestum, þegar farið var í bátana og fullorðinn maður fylgdist með þeim. I leiknum þurfti jafnan að leysa marg- ar þrautir, svo sem að semja sögu óþekktra landa og kortleggja þau, ráða gátur, binda hnúta, vita um stöðu sólar á tilteknum tím- um dagsins o. s. frv. Stundum þurfti að kveikja eld og oft sló í bardaga. Leik þessum var ekki hægt að ljúka á einu kvöldi, svo einhverjir þættir hans fóru jafn- an fram næsta dag. Um kl. 10.30 e. h. var aftur komið heim í skála og beið kvölddrykkurinn þá eftir okkur. Birgir Helgason, söngkennari skólans, kom á kvöldvökurnar þennan dag og stjórn- aði söng eftir að komið var heim úr leikn- um. Einnig kornu nokkrir aðrir kennarar í heimsókn suma dagana. Gengið var til náða laust eftir kl. 11.00 og fullkomin kyrrð komin á í húsinu nokkr- um mínútum síðar. 3. dagur. Þennan dag var liðið vakið um kl. 8.30 og morgunverkin voru hin sömu og daginn áður. Eftir fánaathöfnina fóru fram leikir og íþróttir, og var sumt af þeim í tengslum við leikinn, er frarn fór kvöldið áður. Frá íþróttavellinum var haldið sem leið liggur til norðurs í áttina að bænum Hól- um, en síðan gengið vestur að Eyjafjarðará. Þar eru greinilegar rústir er gætu verið af smalabyrgi og gafst þá tækifæri til að rifja upp ýmislegt í sambandi við smalana. Þar var einnig rifjuð upp hai'kningasaga Kristins Jónssonar frá Tjörnum, sem villtist í göngum á fjöllunum suður af Eyjafirði 27. sept. 1898 og kom til byggða suður í Ár- nessýslu eftir átta daga útivist. Einnig var minnst á sögu gangnamannakofans Grána, sem byggður var við Geldingsá fyrir 50 ár- um fyrir foi-göngu húsfreyjunnar á Jökli, Sesselju Sigurðardóttur. Þá var einnig greint frá sæluhúsi Ferðafélags Akureyrar við Laugarfell sem reist var 1949, sögð þjóðsagan um Helgu þá er sagnir lierma að flúið hafi drepsótt í byggð og búið við Laug- arfell endur fyrir löngu. Frá þessum stað lá leiðin upp með ánni, en hún hefur brotizt í gegnum hólana, er eitt sinn stífluðu dalinn. Fi-arn úr hólunum austan árinnar berast í leysingum leifar af birkiskógi, sem sagður er um 10 þúsund ára. Fundu sum börnin nokkra trjábúta þama í bökkunum. Á heimleiðinni komum við á stekk, sem stendur vel uppi ennþá. Þar var rætt um frá- færur og þá búskaparhætti, ef tíðkuðust á fyrri öldum. Kornið var að Hólavatni um kl. 12.00. í þessari ferð var safnað grjóti og plöntum. Eftir miðdagsverðinn var stuttur hvíldar- tími er flestir notuðu til að skrifa dagbók. Síðan var farið í íþróttir eða unnið við þá hluti er safnað var í moi'gunferðinni. Síðari hluta þessa dags var flokkunum skipt líkt og í Leyningshólum. Annar hópurinn lærði lítilsháttar með- ferð korta og áttavita hjá Hallgrími á með- an hinn hópurinn kynntist umgengni í tjöld- um og á áningarstöðum, vali og meðferð þeirra hluta, sem nauðsynlegastir eru í úti- keimili og skoli 95

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.