Heimili og skóli - 01.08.1970, Page 52
legu, umferð utan vega og umgengni í
ósnortnu landi. Þennan þátt annaðist
Tryggvi. 011 kennslan var sýnileg eða verk-
leg. (Börnin fengu einnig stuttar fjölritaðar
leiðbeiningar.)
Ætlunin var að fara yfir helztu atriðin í
sambandi við skyndihjálp, og höfðum við
öll tæki til þess á staðnum, en ekki vannst
tími til þessarar kennsln nema lítilsháttar í
einum bekk.
I stað venjulegs kvöldverðar þennan dag
var sezt að góðum veitingum við skreytt
veizluborð. Að loknu borðhaldinu hófst
kvöldvaka er stóð til kl. 9.00 en þá var hald-
ið heim til Akureyrar.
Að undanförnu hefur mikið verið unnið
úr því efni er safnaðist í „vettvangsskólan-
um“. Plöntum og grjóti komið fyrir, dag-
bækur endurskoðaðar, stílar gerðir o. s. frv.
Eg var með börnunum allan tímann og
tel að ég hafi mikið af dvölinni lært hvað
snertir framkvæmd skólahalds af þessu
tagi, og einnig hafa kynni mín af nemend-
um og kennurum orðið meiri og betri en við
venjulegt skólastarf. Við Hólavatn ríkti sá
félagsandi, sem ég vona að haldi áfram að
þróast í skólanum hér heima.
Eins og bent var á í upphafi þessa máls
verður að miða „vettvangsskóla“ við þátt-
takendur, þá leiðbeinendur sem völ er á, og
þann stað og árstíma sem valinn er til starf-
seminnar. Ferðin verður að hafa tilgang sem
öllum er ljós, og þátttakendurnir verða að
ná settu marki.
Illa undirbúin útilega með vökunóttum og
slæpingsdögum verður engum til gagns eða
varanlegrar ánægju.
Þetta höfum við í huga við undirbúning
„vettvangsskólans“, og okkur tókst að gera
hæfilega dagskrá og framkvæma hana.
Þessar útilegur stóðu fyrir frá 21. sepL
til 3. okt. vegna þess að allir hóparnir not-
uðu sama staðinn og undirbúningur heima-
fyrir tók all langan tíma, en bezt hefði ver-
ið að ljúka ferðunum fyrir miðjan septem-
ber, eins og áætlað var í upphafi. Að sjálf-
sögðu voru tvær dagskrár gerðar fyrir þes-a
útilegu og var önnur þeirra miðuð við ill-
veðursdaga og mikla inniveru. Til hennar
þurfti þó ekki að taka, þar sem veður var
með eindæmum gott alla dagana sem dval ið
var að Hólavatni. Þó held ég að dagarnir
við Hólavatn verði ennþá bjartari sólskins-
dagar í endurminningum þátttakendanna,
þegar frá líður, og ég vona að starfsemi af
þessu tagi eigi eftir að aukast stórlega í ís-
lenzkum skólum.
— BARNÁSKÓLI ÍSÁFJARÐAR
Framhald af bls. 87.
tvær hæðir og kjallari undir nokkrum hluta bygg-
ingarinnar. Stærð þess er um 5200 rúmm. Hér
er um að ræða 8 almennar kennslustofur, skrif-
stofu skólastjóra, skrifstofu yfirkennara ásamt
biðstofu, sem jafnframt verður aðsetur skrifstofu-
stúlku, kennarastofa ásamt eldhúsi, vinnuherhergi
kennara, fimm geymsluherbergi, fjögur rúrngóð
snyrtiherbergi nemenda, fjögur snyrtiherbergi
kennara, rúmgóður kyndiklefi, og mjög rúmgóðir
gangar og tvö stór anddyri. Byggingin er mjög
vönduð, allt efnisval var gert með það í huga,
að viðhaldskostnaður yrði í lágmarki. OIl hús-
gögn eru ný, einnig allar innréttingar og skápar
í kennslustofum og vistarverum kennara.
Setur og bök í stólum nemendanna eru stoppuð,
enda hin þægilegustu sæti. Byggingin er hið
vandaðasta og glæsilegasta hús, og er öll aðstaða
þar hin ákjósanlegasta.
Hœsta aðalenkunn á bamaprófi hlaut Stefán
Jóh. Stefánsson 9.15. Næsthæsta aðaleink. hlaut
Theódór Þorsteinsson 9.00. Þeir voru báðir nem.
í 12 ára bekk.
96
HEIMILI OC SKÓLI