Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 11

Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 11
SIGRIÐUR THORLACIUS FULLORÐINSFRÆÐSLA Blaðstjórn Heimilis og skóla kann frú Sigríði Thorlacius bestu þakkir fyrir ágæta og skilmerkilega grein um fullorðinsfrœðslu. Frú Sigríður er löngu landskunn fyrir þáttöku sína á opinberum vett- vangi, einkum málefnum sem konur varða. Hán er formaður Kvenfélaga- sambands Islands og ó, vegum þess átti hán sœti í þeirri nefnd sem átbjó laga- frumvarpið um fullorðinsfræðslu og var hán ritari nefndarinnar. Þegar þessar línur eru ritaðar, hefur frumvarp til laga um fullorðinsfræðslu ver- ið lagt fram á Alþingi. Aður höfðu margir aðilar fengið það til umsagnar og sumir þeirra látið í liós álit sitt. Öllum er ljóst, að frumvarpið er miðað við það að sett verði rammalöggjöf, sem fylla má inn í með reglugerðum eftir því, sem reynslan sýnir að þörf verður á. Er umsvifaminna að setja reglugerðir en lög um hin smærri atriði. Þessi leið hefur m. a. verið valin með hliðsjón af því, að fræðslutilboð kynnu að verða fjölþættari, ef ekki yrðu í upp- hafi settar of þröngar reglur. Sumir hafa hnotið um það ákvæði 1. gr. frv., að markmið fullorðinsfræðslunnar sé að hún verði annar þáttur í menntakerfi þjóðarinnar, œvimenntun, og jafnrétthá hin- um þættinum, hinu lögbundna skólakerfi, frummenntuninni. Hafa menn jafnvel skilið það svo, að stefnt væri að jafn dýru mennta- kerfi við hlið frummenntunar. Svo er ekki. Að tilmælum menntamálaráðuneytisins samdi nefndin, sem að frumvarpsgerðinni stóð, viðbótarákvæði um kostnaðarhlið framkvæmdanna í upphafi og er þar gert ráð fyrir fimm hundraðshlutum til fullorð- insfræðslu miðað við fjárframlög til hins HEIMILI OG SKÓLI 5

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.