Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 24

Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 24
menntamálaráðuneytisins og Sambands íslenskra sveitarfélaga með hliðsjón af til- lögum ýmissa aðila, er standa að fullorð- innafræðslu. Jafnframt verði þróuð kennslugagna- stofnun ríkisins, er fullorðinnafræðsla eigi aðgang að til jafns við hið lögbundna skóla- kerfi (sbr. 18. gr.). g. Menntamálaráðuneytinu verði heimil- að að starfrækja fullorðinnadeildir á veg- um skóla framhaldsstigsins, enda veiti þær fræðslu hliðstæða frummenntun, einnig á sviði verk- og tæknimenntunar, og kostnað- ur greiddur á sama hátt og við hliðstæða frummenntun. Þess verði gætt að ákvarða aldursmark til inngöngu í slíkar deildir, að ekki verði stofnað með þeim til óeðlilegrar samkeppni við venjulega skólagöngu ung- menna, til dæmis miðað við 21 ár sem lág- marksaldur. h. Til stuðnings við starfsmenntun full- orðinna, sem þegar eru í starfi á vinnu- markaðinum, veitir ríkið almenna stefnu- markandi forystu og aðstoði við: að koma á sérstökum námskeiðum í samvinnu við starfsmannasamtök og fræðslu innan náms- flokka og með öðrum hætti. Ríkið greiði kostnað vegna stjórnunar og skipulagningar slíks náms, stuðli að útgáfu námsefnis og launi sérhæfða kennslukrafta að vissu marki (sbr. c.-lið), en á móti komi greiðslur frá starfsrnannafélögum og úr atvinnuleysis- tryggingarsjóði, sbr. 24. gr. laga um at- vinnuleysistryggingar nr. 57/1973, þar sem segir: „Stjórn sjóðsins er heimilt að veita þátt- takendum í viðurkenndum starfsþjálfunar- námskeiðum styrk, sem nema má allt að því jafnhárri fjárhæð og atvinnuleysisbætur eru samkvæmt 18. gr. a, fyrir hvern þátttakanda í slíkum starfsþjálfunarnámskeiðum að við- bættri þátttöku í ferðakostnaði og öðrum óhjákvæmilegum útgjöldum þátttakenda.“ Ekki teldum við heldur óeðlilegt, að fræðslusjóðir eða hliðstæðir sjóðir laun- þegasamtaka léttu undir með félagsmönn- um með styrkveitingum eftir efnum og ástæðum til að eiga kost á fræðslu á slíkum námskeiðum og til þátttöku í öðrum grein- um fullorðinnafræðslu. Eðlilegt sýnist, að félagsmálafræðsla fyr- ir launþega verði tengd námsflokkastarf- semi á hverjum stað, enda eigi launþega- samtök aðild að stjórn námsflokka eins og síðar verður að vikið. Gæti slík skipan komið í staðinn fyrir sérstakan félagsmála- skóla launþega á vegum ríkisins, sem hug- myndir hafa komið fram um, en stuðningur hins opinbera við félagsmálafræðslu komið inn í námsflokkakerfið með öðrum hætti. Kostnaður af starfsþjálfun fullorðinna í beinum tengslum við atvinnurekstur og vinnustaði ætti hins vegar að greiðast af at- vinnurekendum einum eða samtökum þeirra, þótt ríki og stjórn námsflokka á hverjum stað gæti aðstoðað við skipulagn- ingu. I þessu sambandi tala höfundar frum- varpsins í greinargerð (bls. 24 efst) um þau markmið, „ . . . að fræðslan komi að notum og verði bæði til að efla atvinnulífið, tryggja persónuþroska og verkmenningu og auka ábyrgðartilfinningu og skapa greiðari og meiri upplýsingamiðlun milli allra þeirra, sem sameiginlegra hagsmuna hafa að gæta . . .“ Sýnist eðlilegt, að atvinnu- rekendur beri einir kostnað af fræðslu, sem þannig er beinlínis ætlað að þjóna hags- munum atvinnurekstursins, og á meðan hljóta starfsmenn að eiga rétt á að halda óskertum launum. 18 HEIMILI OG SKÖLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.