Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 16
SR. GUÐMUNDUR SVEINSSON:
UNESCO og fullorðinsfræðsla
Þetta fróðlega erindi um þróun
fullorðinsfrœðslu sem hér birtist með
leyfi höfundar var upphaflega flutt á
ársfundi MFA 1972.
Sr. Guðmundur Sveinsson var for-
maður þeirrar nefndar sem samdi
lagafrumvarpið um fullorðinsfrœðslu.
Hann var um langt árabil skólastjóri
Samvinnuskólans að Bifröst í Borgar-
firði en hefur nú látið af því starfi til
þess að taka við stjórn fyrsta fjöl-
brautarskóla sem verið er að reisa hér
á landi í Reykjavík.
Um leið og blaðstjórn þakkar sr.
Guðmundi birtingu greinarinnar, árn-
ar hún honum allra heilla í nýju og
vandasömu starfi.
1. INNGANGUR
I þessu erindi mun ég leitast við að gera
grein fyrir þætti Menningar- og vísinda-
stofnunar Sameinuðu þjóðanna, Unesco,
stofnunar sem í senn er kennd við menntun,
vísindi og menningu, í fullorðinsfræðslu,
adult education, eins og hún er kölluð á
enskri tungu, voksenundervisning eða voks-
enopplæring eins og hugtak bræðraþjóða
okkar á Norðurlöndum hljómar. -— Ástæð-
an er ekki síst sú að síðast-liðið sumar, nán-
ar tiltekið dagana 25. júlí til 7. ágúst var
haldin þriðja alþjóðlega ráðstefnan um full-
orðinsfræðslu í Tokíó í Japan. Þáttur Un-
esco í fullorðinsfræðslunni er næsta sér-
stæður og því ástæða til að gera sér grein
fyrir honum, enda má segja að Unesco hafi
með nokkrum hætti mótað og þróað hug-
mynd fullorðinsfræðslunnar og ekki síst
fyrir tilstilli þeirra merku alþjóðasamtaka
er fullorðinsfræðslan raunverulega orðin
það sem hún nú er víða, víðast mætti segja
sérstæður þáttur við hlið og víða samofinn
hinu hefðbundna skóla- og fræðslukerfi. Svo
er meira að segja nú komið að farið er að
líta á fullorðinsfræðsluna sem sérstakan
vott um þróun og ágæti menntakerfis í hin-
um ýmsu löndum. Því fullkomnara sem
10 - HEIMILI OG SKOLI