Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 19

Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 19
ur þáttur menntunar. -— Þetta nýja viðhorf birtist einna Ijóslegast í því að í vitund manna var að fæðast nýtt hugtak, sem skýra átti hvað til grundvallar lægi. Ogreinilegt og hikandi var þetta hugtak eða hugtök, því þau áttu eftir að verða þrjú áður en lyki. En það sem varð til á sjálfri ráðstefnunni í Montreal og gaf stefnubreytinguna til kynna var hugtakið ævimenntun, life-long- education, eða svo notuð sé lengri mynd þessa hugtaks, life-long intergrated educat- ion, ævimenntun felld með eðlilegu móti inn í störf manna og atvinnu svo að úr yrði samræmd og samfelld heild. — Margt varð til þess að skapa þetta nýja menntunarhug- tak svo og hin tvö er hliðstæð voru, — hug- tak Evrópuráðsins, sem tók einnig að fjalla um fullorðinsfræðslu, en það var hugtakið Permanent Education, stöðugt áframhald- andi þáttur menntunar og loks hugtak Efna- hags- og framfarastofnunarinnar, O.E.C.D. Recurrent Education, menntun sem á sér stað aftur og aftur, símenntun hefur þetta hugtak Efnahags- og framfarastofnunarinn- ar O.E.C.D. verið kallað á íslensku. — Margt varð til þess að skapa þessi mennt- unarhugtök og verður fátt rakið hér. Eftir- farandi er augljóst: Ný tækni hafði bylt at- vinnulífi margra landa og haft í för með sér umturnun félagslega og efnahagslega. Þróuðustu samfélögin voru að hverfa frá frumstigi iðnvæðingarinnar, industrialism- ans, til síðara stigs iðnvæðingar, sem stund- um er kallað superindustrialismi, frá iðn- aðarsamfélaginu til þjónustusamfélagsins eins og þessi umskipti hafa líka verið skil- greind. Við þessar umturnanir misstu tugir og jafnvel hundruð þúsunda atvinnu sína og það oft á tíðum atvinnu, sem menn höfðu búið sig undir með löngu bók- og verknámi. Hér þurfti að fara fram endurmenntun. Skapa þurfti hinum mikla fjölda ný tæki- færi að búa sig undir önnur störf er buðust og það oft á tíðum störf sem áður þekktust ekki og hin nýja tækni hafði búið til beint eða óbeint. — Önnur meiri háttar breyting sem orðið hafði á 6. áratugnum frá 1950— 1960 eða milli hinna tveggja ráðstefna var hin ótrúlega þekkingarbylting sem átt hafði sér stað, ef taka mætti svo furðulega til orða. Menn höfðu fyrir satt að á hálfri öld, frá aldamótum til 1950 hefði þekkingar- forði mannkynsins tvöfaldast og þóttu firn mikil. En hvað sögðu menn þá um hitt er talið var sannleikanum samkvæmt að þekk- ingarforðinn hefði aftur tvöfaldast og það aðeins á 10 árum frá 1950—1960? — Sýni- legt þótti að svo væri sem skriðu hefði verið hleypt af stað og hér væri verið við upphaf nýrrar þróunar en ekki ris eða endalok. Afram myndi þekkingarforðinn halda á- fram að tvöfaldast og tíminn, sem það gerð- ist á, verða styttri og styttri. — Til allra þátta þekkingar og starfa myndi aukningin ná, og meira hefði aukningin þegar náð og þannig myndi þetta halda áfram. Af þessu leiddi einfaldlega að hver einasti maður yrði að ætla sér ákveðinn tíma á vissu ára- bili til að endurnýja þekkingarforða sinn svo að hann stæði raunverulega í stað að því er hæfni og kunnáttu snerti. Hér hlyti til að koma mikil og margþætt fullorðins- fræðsla, sem væri í nánum tengslum við atvinnulíf og efnahagsafkomu. — Þá var í þriðja lagi aukning frítímans og stytting vinnutímans í mörgum löndum mikil eggj- un að auka möguleika manna til menntun- ar og gera þeim kleift að njóta annarra og fjölbreyttari menningarþátta en verið hafði. Það sagði sig sjálft að áhrif Montreal- HEIMILI OG SKOLI 13
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.