Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 39
stærðarvídd, þá eru hlutir sem eru fjær
teiknaðir minni. Þessi þáttur er þó mjög
einstaklingsbundinn og gildi tilsagnarinnar
einmitt á þessu sviði má ekki vanmeta.
Omeðvituð náttúrulíking, 11 til 13 ára
Þetta er tímabil sem hefur í för með sér
miklar breytingar á þroska flestra barna.
Við upphaf þessa skeiðs hefur barnið náð
hámarki þróunar, sem einkennst hefur af
hlutstæðri, raunsærri og úthverfri afstöðu
til umhverfisins. En í lok þess eru flest börn
á þröskuldi kynþroskans, sem felur í sér að-
gerðarleysi, innhverfi og miklar vangavelt-
ur um eigin þroska, bæði andlegan og lík-
amlegan. Þessar miklu breytingar endur-
speglast glöggt í teikningum þeirra. Smátt
og smátt hverfur barnið frá hinni barns-
legu, tæru skynjun og verður sífellt gagn-
rýnna á eigið verk. Þannig gerist það að
fullgerð vekur myndin mestan áhuga en
ekki eins og áður, athöfnin sjálf, það að
gera myndina.
Þetta er um leið tímabil séreiginlegs
mismunar, þar sem kunna að fyrirfinnast í
einni og sömu bekkjardeild börn sem ekki
hafa sagt skilið við fyrri stig, sem ég hef
áður nefnt, og svo önnur sem í verkum sýna
fullorðinslegt, þroskað svipmót. Það gildir
þó um flest börn á þessu aldursskeiði að á
þessum aldri ná þau lengst í náttúrulegri
framsetningu. Með öðrum orðum er barnið
farið að hagnýta sér í vinnu sinni andstæðu
ljóss og skugga auk dýptarverkandi skálína,
skurðar o. fl. Eins er barnið fært um að
túlka breytilegri og flóknari stellingar og
sýna hlutina frá fleiri hliðum en áður, og
síðast en ekki síst kemur það hreyfingu
miklu betur til skila. Hvað varðar litanotk-
un þá verður hún einnig náttúrulegri, bein
áhrif hins sjónræna verða gleggri.
14 til 16 ára
A þessu skeiði vaknar gagnrýni barnsins
fyrir alvöru, bæði gagnvart umheiminum
og eins gagnvart eigin verkum. Þegar á
undan kynþroskanum má sjá hvernig það
reynir að fjarlægjast teikningar sínar með
15 ára. — Sjálfsmynd.
því t. d. að teikna skopmyndir í stað réttra
mynda. Með því getur það á vissan hátt
ögrað tiltekinni persónu eða hlut og forð-
ast um leið að teikna eitthvað sem það ræð-
ur raunverulega ekki við. Nokkru seinna
getur sjálfsgagnrýnin orðið svo sterk að
börn hætta jafnvel alveg að teikna. Á kyn-
þroskaskeiðinu getur því brugðið til beggja
HEIMILI OG SKÓLI
33