Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 50
Sumarið 1973 ákvað menntamálaráðu-
neytið með samþykki sveitarstjórnar Egils-
staðahrepps að stefna að sameiginlegu
íþróttahúsi með leikfimisal og sundlaug
fyrir skóla á Egilsstöðum, og jafnframt
skyldi tekið tillit til þarfa almennrar
íþróttastarfsemi á Austurlandi, eftir því
sem samstaða tækist um. Var bygginganefnd
menntaskólans falið að vinna að framgangi
þessa máls, og hefur slík íþróttamiðstöð
verið forhönnuð af arkiteklum skólans. Enn
er þó beðið ákvarðana ráðuneytis um
staðla (norm) fyrir slíkt húsnæði og þar
með um kostnaðarhlut ríkis og heimaaðila.
Síðan er eftir að leita samstöðu meðal Aust-
firðinga um fjármögnun til slíks mannvirk-
is, ef unnt á að reynast að koma upp stærri
aðstöðu en skólanorm kveða á um. Þarna er
um að ræða íþróttasal af stærðinni 22x44
metrar og sundlaug 25x11 metrar.
Bygginganefndin telur, að jafnframt því
sem átak er gert til að efla framhaldsmennt-
un innan fjölbrautarskóla í fjórðungnum,
bæði á sviði bóknáms og verkmenntunar,
þurfi að bæta verulega frá því sem nú er
aðstöðu grunnskóla á svæðinu, því að á
starfi þeirra hvílir framhaldsnámið. Bygg-
inganefndin treystir á stuðning menntamála-
ráðuneytis og fjárveitingavalds og atfylgi
þingmanna kjördæmisins og sveitarstjórna
og almennings á Austurlandi við bætta al-
hliða menntunaraðstöðu og væntir að ekki
líði mörg ár áður en menntaskóli á Egils-
stöðum geti tekið til starfa við góðar að-
stæður. — (Fréttatilkynning frá Bygginga-
nefnd menntaskóla á Austurlandi).
Frá skólanefnd
Akureyrar
Nokkrar kennarastöður eru lausar við barna- og gagn-
fræðaskóla bæjarins.
Umsóknarfrestur til 29. maí nk.
Skólanefnd Akureyrar
44 - HEIMILI OG SKÓLI