Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 58

Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 58
Ahrif tóbaksreykinga Foreldraþátturinn hefur rejndar áður birt grein um tóbaksreykingar og áhrif þeirra. — Blaðið telur það skyldu sína að vara við þeim bölvaldi sem reykingar eru. Munnur Ahrif nikótínsins koma fram á slímhimn- unum, en það síast einnig út í blóðið og verkar þannig á fjölda líffæra. Smekkur- inn sljóvgast. Tjöruefnin erta slímhúðirnar, orsaka tannholdsbólgu, tennurnar gulna og pípureykingamenn fá stundum varakrabba. Nef, kok og barkakýli Þar eru áhrif nikótínsins sömu og í munninum. Ilmanin sljóvgast, tjöruefnin hafa þar einnig sömu áhrif og í munninum, valda slímhúðarbólgum, ertandi hósta og krabba í barkakýlinu. Lungu Allt að 95% nikótínsins í tóbaksreykn- um streymir um lungun hjá þeim, sem anda honum að sér. Nokkuð fer út í blóðið og útskilst í þvagi, uppgangi og móðurmjólk; flyst meira að segja yfir á íóstrið og brjósta- barnið. Mikið af tjörunni sest að í lungun- um, þar sem hún þéttist og binst slímhúð- arfrumum lungnanna. Bifhárin lamast, sót og reykur sest að í slíminu og veldur erting- arhósta, bólgum í lungnaslímhimnunni og lungnaþani þegar tímarnir líða. Fólk, sem hefur reykt mikið til langframa, á á hættu að fá lunganakrabba. Hjarta og æðar Nikótín eykur hjartsláttinn, púlsinn verð- ur hraður, blóðþrýstingurinn eykst, æðarn- ar dragast saman, hiti húðarinnar fellur um margar gráður, æðarnar kalka og kransæða- stífla myndast. Kolsýrlingur veldur súrefnisskorti og veiklar þannig hjartavöðvana. Magi Nikótín eykur magasýrurnar, ertir slím- húðirnar, veldur bólgum í þeim og orsakar magasár. Almenn áhrif Nikótínið hefur skammvinn örvandi á- hrif á taugakerfið, en þegar lengra líður verða þau lamandi, vinnuafköstin minnka og það veldur svefnleysi, höfuðverkjum og svitakófi. Kolsýrlingurinn binst blóðinu, þrem hundruð sinnum meira en súrefnið, sem hann útrýmir. Súrefnisskorturinn hefur ill áhrif á alla vefi líkamans. Stórreykinga- menn þjást oft af langvarandi kolsýrlings- eitrun, húðin verður öskugrá af mikilli tó- baksnotkun, kynorka lamast hjá mörgum af miklum reykingum. Náttblinda er algeng hjá reykingafólki. Framhald á bls. 51. 52 - HEIMILI OG SKÓLI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.