Heimili og skóli - 01.03.1975, Blaðsíða 40
vona með teikniþroskann og er því mikil-
vægt að haga teiknikennslunni þannig að
áhuginn varðveitist.
Venjulega hverfur barnið nú frá hinum
natúralíska stíl og fer að reyna við ýmsar
tilraunir á teiknisviðinu. A sama hátt og
skriftin getur bókstaflega breyst frá degi
til dags á þessu tímabili, skiptir barnið um
mismunandi teikniaðferðir í viðleitni sinni
til að finna sér persónulegan stíl. Mörg
börn spreyta sig á ýmiss konar rissmynd-
um, föstu línurnar leysast upp, en í þeirra
stað koma lifandi drættir. Hvert blaðið af
öðru fyllist af rissmyndum, frumdráttum
ýmiss konar og meira eða minna óhlutstæð-
um myndum. I mannamyndum dregur úr
áhuganum fyrir að sýna réttan klæðaburð
og önnur velunnin smáatriði. Aftur á móti
beinist mikill áhugi að andlitinu og leitast
barnið við að draga fram einkenni persónu-
leikans í auknum mæli. Ef persónan er öll
teiknuð eru kynferðiseinkennin oft ýkt stór-
um, svo jafnvel nálgast hið skoplega nema
ef barnið er svo hrætt við eigin líkamsbreyt-
ingar að það forðast vandlega að leiða í
ljós nokkurn sérstakan kynmismun í teikn-
ingum sínum. I teikningum stúlkna endur-
speglast mjög ríkjandi tíska, þær reyna
frekar að lýsa fatnaði af nákvæmni. Eins er
oft hrúgað orðurn og táknum umhverfis per-
sónurnar, sem einkenna þá táningatísku sem
mest ber á hverju sinni, love, darling, peace
o. s. frv.
Að lesa í mynd
Það er fjarri að öll börn hafi sálræna
þörf fyrir nokkra tegund teiknunar eða
myndtúlkunar yfirleitt. Sum útausa athafna-
þörf sinni í vinnu eða leik og nýta hug-
myndaauðgi sína, áhuga eða áhyggju í tali.
Sé teikniverkefni lagt fyrir slíkt barn, leys-
ir það vinnu sína af hendi af dugnaði og
hratt en án vandfýsni, þannig að öll mynd-
in er á hreyfingu. Dregin upp lagfæringa-
laust samkvæmt skyndiáhrifum líðandi
stundar. Ovart verða slíkar myndir oft feiki
fagrar án þess að höfundurinn taki eftir því
eða kæri sig hót.
Innhverfa barnið, hljóða, sem sífellt
burðast við að velja og hafna. I þögn og dul
vinnur það sitt verk, hver flötur myndar-
innar er skipulagður, vandlega hugsaður og
hver lína er afdrifarík. Ahyggjan eltir þessi
börn. Þetta eru börnin sem eiga erfitt með
að tala, hugur þeirra er ekki hugur orða
heldur hugur sýna og kennda. Þau skynja
í leiftrum sem þau ná ekki að flytja með
34 - HEIMILI OG SKÓLI