Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 27

Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 27
um ríkisins til menntamála er að okkar dómi fyrst um sinn best varið til að styrkja undirstöðu frummenntunar og fullorðinna- fræðslu á þann hátt, sem hér hefur verið að vikið. Skólanefndin væntir þess, að framkomn- ar athugasemdir verði ekki túlkaðar á þann veg, að hún sé andsnúin fræðslu fullorð- inna né lagasetningu og víðsýnni stefnu- mörkun um það efni. Yið teljum hér afar brýnt málefni á ferð, sem rækja þurfi mun betur en gert hefur verið um leið og náð verði til sem flestra án tillits til efnahags og þjóðfélagsstöðu. Skólanefndin hefur haft til athugunar um hríð að beita sér fyrir námsflokkastarfsemi hér í kaupstaðnum og mun eiga um það samvinnu við ýmsa aðila. Kannski verðum við vitrari að þeirri til- raun lokinni og getum þá endurmetið af- stöðu okkar. Hvaða lög sem sett verða um þessi efni, væntum við sem bestrar sam- vinnu á grundvelli þeirra við þá aðila, sem til verða kvaddir að sinna fullorðinna- fræðslu. í skólanefnd Neskaupstaðar: Agúst Jónsson, Björn Magnússon, Elínborg Eyþórsdóttir, Hjörleifur Guttormsson, Sigrún Geirsdóttir. Aðrir, er um málið fjölluðu: Gerður G. Oskarsdóttir, skólastjári, Gísli Sighvatsson, skólastjóri, Guðmundur Bjarnason, kennari, Randíður Vigfúsdóttir, varafulltrúi í skólanefnd Neskaupstaðar. Neskaupstað, 13. nóvember 1974. Frá Sjúkrasamlagi Akureyrar Samkvæmt nýjum samningum milli Læknafélags íslands og Tryggingastofnunar ríkisins, skal sjúklingur greiða lækni kr. 600.00 fyrir hverja vitjun, sem beðið hefur verið um frá kl. 17.00 — 23.30, en kr. 1.000.00 fyrir næturvitjun, sem beð- ið hefur verið um eftir ld. 23.30. Greiðslur þessar breytast eftir kaupgreiðsluvísi- tölu. Þar sem hér er um verulega hækkun að ræða, hefur stjórn Sjúkrasamlags Akureyrar ákveðið í dag, að endurgreiða sjúklingi helming þessa gjalds, enda framvísi hann kvittun læknisins. Akureyri, 29. apríl 1975. SltJKRASAMLAG AKUREYRAR. HEIMILI OG SKÓLI - 21

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.