Heimili og skóli - 01.03.1975, Qupperneq 32

Heimili og skóli - 01.03.1975, Qupperneq 32
slíks kerfis minnkar kostnaðurinn á hvern nemanda drjúgum að sama skapi og nem- endum fjölgar. En þegar við bættist kennsla innan fjögurra veggja skólastofunnar, sem reyndar var æskilegt, breyttist viðhorfið. Hver nemandi, sem bætist í hópinn, veldur aukakostnaði, og sé fjárhagur þröngur verður einnig að takmarka aðgang. I upp- hafi var áætlað að háskólinn tæki við tutt- ugu og fimm þúsund nemendum árlega og að frádregnum þeim, sem úr lestinni helt- ust, var gert ráð fyrir að stöðug hámarks- tala nemenda næði fimmtíu þúsundum að þrem árum liðnum. Kostnaður við þetta samkvæmt áætlunum, er þá voru gerðar, hefði numið á fyrsta ári 5.5 milljónum sterlingspunda, 6.8 milljónum punda á öðru ári og 7.8 milljónum punda á hinu þriðja. Af fjárhagsástæðum var samt ákveðið að takmarka fjöldann verulega en þó ekki ó- hóflega. I reynd var tekið á móti á fyrsta og öðru ári 24000 og 20500 nemendum. Á þriðja ári mætti búast við að innritanir verði frá fimmtán til átján þúsund allt eftir því hve rýrnun verður mikil. Telja má sennilegt að stöðug hámarkstala nemenda verði nú alls um fjörutíu þúsund. Hömlur þessar valda einnig töluverðum vanda í vali. Háskólinn hefur fylgt þeirri meginreglu að enginn verðandi nemandi skuli útilokaður frá námi vegna skorts á undirbúningsmenntun. Nemendur eru þess vegna teknir í þeirri röð sem þeir sækja um. Auk heildartakmarkana á innritun verða að vera fyrir hendi takmarkanir á aðsókn í hinar ýmsu námsgreinar til að tryggja sanngjarna skiptingu nemenda milli þeirra svo og milli umdæma og atvinnu- greina. Árangur aðferðar þessarar, sem er óhjákvæmilega nokkuð margbrotin, er sem hér segir. Fyrsta árið bárust 43000 um- sóknir. Inngöngu hlutu 24000 nemendur og þeir greiddu innritunargjöld sín. Að loknum þriggja mánaða reynslutíma greiddu 19000 nemendur eftirstöðvar náms- gjaldsins og gerðust fullgildir nemendur háskólans. Annað árið sem skólinn starfaði bárust 35000 umsóknir og 20500 nemend- ur hafa innritast og greitt bráðabirgða inn- ritunargjald sitt. Fjöldi umsækjenda er mik- ill, enda þótt þeir séu færri en fyrsta árið. Þykir þetta ekki markvert, því að starfsemi háskólans er ekki lengur nýnæmi, og fleir- um er kunnugt um kröfur þær sem námið gerir til nemandans. Ekki telst það heldur kynlegt þótt um það bil 20% nemenda hafi horfið frá námi á fyrstu þrem mánuðum ársins. Slíkar tölur eru algengar í bréfa- námskeiðum um heim allan og tala þessi lækkar (af ofangreindum ástæðum) senni- lega verulega á öðru ári. Hitt er athyglis- vert að tala umsókna skuli haldast svo há sem raun ber vitni og að tala þeirra, er hverfa frá námi skuli vera svo lág. I lok fyrsta árs luku 75% af þeim 19000 nem- endum, sem stóðust þriggja mánaða reynslu- tímann, prófi og hlutu námseiningar sínar. Þetta er sannfærandi vinisburður bæði um góða nemendur og gæði kennslunnar sem þeir nutu. Nákvæmar upplýsingar um þennan hóp nemenda eru ekki fyrir hendi. Við vitum að tveir þriðju hlutar þeirra eru karlmenn og einn þriðji hlutinn er kvenfólk. Um 50% nemenda eru á aldrinum tuttugu og eins árs til þrítugs, um 40% þeirra eru milli þrjáíu og eins árs og fjörutíu og fimm ára aldurs. Um 10% nemenda eru eldri en fjörutíu og fimm ára. Um 30% nemenda eru kennarar, 12% eru í öðrum launastétt- 26 - HEIMILI OG SKÓLI
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.