Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 37

Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 37
mynda þessar samsetningar flatarmálsforma fuxðu heillegar teikningar. Venjulega við fjögurra til fimm ára ald- ur á sér stað mikil breyting á teikni barns- ins, sem hefur mótandi áhrif á teiknivirkni þess síðar. Hreyfistarfsemin ein saman nægir ekki lengur, heldur leitast barnið við að draga upp mynd ákveðinna þátta um- hverfisins, m. ö. o. leitar í myndsköpun sinni eftir merkingu, samsvörun. Ætla má að fyrst gerist það fyrir áhrif prentaðra mynda, teikni fullorðinna eða sem oft er að eigin mynd minnir á einhvern hlut um- hverfisins. Hver svo sem vakinn er þarf barnið að hafa náð tilteknum greindar- þroska til þess að geta notfært sér hug- myndir og tákn í mynd og jafnframt skynj- að líkinguna. Þess er rétt að minnast að þessi þróun á teiknisviðinu á sér ekki stað fyrr en barnið hefur um nokkurn tíma leik- ið sér af nokkru öryggi með hugmyndir og tákn móðurmálsins. En að teikna eða mála mynd er ákaflega flókin athöfn sem krefst flókinnar hreyfistjórnar og algerrar sam- hæfingar sjónar og hreyfingar. Fyrsta teikning þessa tímabils er venju- lega af manneskju, höfuð og tveir fótleggir, sem þegar best lætur tengjast höfðinu. Fljótt bætast við handleggir og búkur. I heild ein- kennist þetta skeið þróunarinnar af sífelld- um tilraunum með breytileg form. Oft ger- ist það að barnið snýr frá upphaflegum áformum um það af liverju eða hverjum teikningin skuli vera ef teikningin á ein- hverju stigi minnir það á eitthvað annað en það upphaflega hafði hugsað sér. Það sem auðkennir þetta skeið er að smáatriði í teikningunni eru ekki nægilega sjálfstæð, til að hafa merkingu séu þau tekin frá heildinni. Notkun lita byrjar nú að hafa verulegt gildi fyrir barnið, þó ekki sem eiginleg lit- skreyting, heldur er notkun þeirra mjög huglæg. Notkun lita er háð sambandi barns- ins við hlutinn sem það lýsir og tilfinningu þess fyrir litnum sjálfum. Frá 7 til 9 ára A þessum aldri gegna umhverfisáhrif og tilsögn veigamiklu hlutverki í þróun teikni- leikni. Og jafnframt fer að gæta aukins munar á verkum einstakra barna. Þess vegna verða aldursmörk einstakra þróunar- skeiða sífellt óöruggari og ber því að líta á þau hér sem eins konar meðaltal. Einkenni þessa skeiðs, sjö til níu ára, eru að eftir allmiklar tilraunir tekst barninu að lýsa fjölda fyrirmynda, sem sýna mikinn stöð- ugleika. Þó er framsetningin talsvert langt frá að vera natúralísk. Nei, það er öllu lieldur skráning þess sem barnið veit um hlutina, fremur en að það túlki það sem það sér með augunum. Til dæmis er ekki óal- „Skemateikning“ eftir 7 ára. gengt þegar barn teiknar barnavagn, að það sýni ungabarnið líka, vegna þess að það veit að það er þar, þó ekki sjáist það. Mjög algengt er að hlutverk og þýðing HEIMILI OG SKÖLI 31

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.