Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 38

Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 38
ákveðinna þátta verksins séu ýkt til áherslu- auka. Sem dæmi nefni ég, að barn sem teiknar persónu að grípa bolta mun teikna handleggi og hendur stærri, vegna þýðing- ar þessa líkamshluta innan heildarinnar. Annars er barnið ekki fært um að sýna sér- eiginleika hluta eða manna svo nokkru nemi. Það er þá helst að það bæti inn á myndina hatti, pípu, gleraugum eða slíku. „Skemastigið“ hefur þetta tímabil oft verið nefnt vegna þess að barnið tileinkar sér ákveðið „skema,“ sem það endurtekur síðan aftur og aftur. Manneskjuskemað er t. d. hringlaga, þríhyrndur eða ferhyrnd- ur búkur með höfði, mislöngum höndum og fótum. Dýraskemað er oft hið sama hvort um er að ræða kött eða fugl, þannig má oft sjá fugl með fjóra fætur í teikningum barna. Sama gildir um blóm, hús, bíla og flest annað, sama skemað er endurtekið af undarlegu tilbreytingarleysi. Húsið, sem er eitt uppáhaldsverkefnið, er þannig nær allt- af teiknað sem einbýlishús þó jafnvel höf- undurinn búi í fjölbýlsihúsi. Nú hættir barnið að verulegu leyti hug- lægri notkun lita, það uppgötvar að tiltekn- ir litir eru tengdir ákveðnum hlutum. Þessi breyting er oft samfara lestrarnáminu, þar sem barnið les og lærir að himininn sé blár, grasið grænt o. s. frv. En þau kynni ráða oft miklu um val lita síðar, þannig er sami hlutur litaður sama lit hvar sem hann kemur fyrir. Himinn er t. d. litaður blár þó í regnmynd sé, og tré græn í vetrarmynd. Þáttur leiðsagnarinnar er auðvitað mik- ilsverður á þessu aldursskeiði ekki síður en á þeim sem eftir koma. Og hefur kennslan bein áhrif á þróun teiknileikni, þannig taka síðari skeið fyrr við ef barnið nýtur réttrar leiðsagnar. Byrjun raunsœis, 9 til 11 ára Þetta skeið hefst með aukinni línu- og formtilfinningu barnsins. Engin skýr mörk eru þó milli þessa skeiðs og þess á undan, þar eð í teikningu barnsins blandast oft saman einkenni beggja. í mannamyndum hverfa þau form sem ónáttúrulegust eru, svo sem kringlóttu og ferhyrndu formin. Handleggir og fótleggir sem áður tengdust bolnum lauslega, voru jafnvel misstórir og gildir, tengjast nú réttar. Klæðaburði er glögglega lýst og aukin tilraun gerð til að túlka hreyfingu. Handleggir, sem áður voru stífir og stóðu beint út, eru sýndir í mis- munandi stellingu; beygðir, í vasa o. s. frv. Hlutföll líkamans betur áréttuð, t. d. höfuð- ið teiknað minna en áður miðað við búkinn. Mörg sérkennileg verk verða til vegna áherslu þeirrar sem barnið leggur á smá- atriði, svo sem hárgreiðslu, peysumunstur o. fl. Einkenni kynjanna verða skýrari, t. d. í klæðaburði og jafnvel í línum líkamans. Litanotkun verður blæbrigðaríkari en áður, barnið skynjar fíngerðan mismun og upp- götvar að t. d. rauður litur getur verið mis- munandi rauður eftir því hvaða litum er blandað í hann. Slíkar uppgötvanir vekja ekki einasta áhuga barnsins á aukinni fjöl- breytni í litavali, heldur vekja það til auk- innar rýni, athugunar og skoðunar á mis- munandi litbrigðum umhverfisins. Og fær það til að sjá, en ekki bara horfa. Það hef- ur komið fyrir í kennslustund, að barn leit út um glugga kennslustofunnar á snævi- þakta jörð og sagði: „Nei, sjáiði, snjórinn er líka blár, jafnvel fjólublár.“ A þessum aldri byrjar barnið að reyna að túlka rými með því að sýna hlutina hvern aítan við annan, þannig að aðeins hluti þess sem aftar er sést eða þá að nota 32 - HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.