Heimili og skóli - 01.03.1975, Page 53
frá bókaútgáfunni skjaldborg
Flóttinn mikli.
Eftir Indriða Úlfsson.
Bókin kom út nú fyrir jólin síðustu og er
sjöunda bókin sem Skjaldborg gefur út eftir
höfundinn, Indriða Úlfsson, skólastjóra á
Akureyri.
Segir sagan frá ungum, munaðarlausum
dreng, Loga að nafni, sem er neyddur til
af stjúpföður sínum, Svarta-Láka, að taka
þátt í innbroti í skartgripaverslun við þriðja
mann. Loga tekst að flýja frá þessu ómann-
úðlega umhverfi og eltingarleikurinn mikli
hefst. Stjúpfaðirinn og félagi hans fylgja
drengnum eftir sem grár skuggi og lendir
Logi í ótal mannraunum á flóttanum. En
Logi kynnist einnig hinni björtu hlið lífs-
ins og ævintýrið endar vel.
Indriði kann þá list að segja vel frá og
á auðvelt með að skapa spennu í frásögnina.
Hjálpast þar að bæði lipur stíll og gott
málfar. Er mér kunnugt um það að börn
og unglingar láta bækur Indriða ógjarnan
frá sér fyrr en að lestri loknum. Enda eiga
þau auðvelt með að lifa sig inn í þann ævin-
týraheim, sem fram kemur í bókum höf-
undar. Þó má vera, að sumum þyki höf-
undurinn fjarlægjast um of raunveruleik-
ann í frásögninni, ekki síst nú á tímum, þeg-
ar allur boðskapur á að hafa í sér helst ein-
hverja þjóðfélagsádrepu eins og nú er í
tísku. Hvernig væri annars að spyrja börn-
in sjálf? Má ekki ætla að atburðarraunsæi
þeirra sé á annan veg farið en hjá fullorðn-
um? Dr. Símon Jóh. Ágústsson segir á ein-
um stað í bók sinni, Börn og bækur: „Lestr-
arefnið verður framar öllu að hafa skemmti-
gildi fyrir barnið og höfða til einhverra á-
hugamála þess.“ Eg ætla, að Indriði fylgi
þessari ábendingu í bókum sínum.
Bókin er myndskreytt af Bjarna Jónssyni,
kennara. Setningu, prentun og bókband hef-
ur Prentsmiðja Björns Jónssonar, Akureyri,
annast og gert því verki ágæt skil.
FRÁ ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJU HF.
Enn um okkur Kalla.
Eftir Orn Snorrason.
Orn Snorrason hefur orðið við áskorun
ökkar í Heimili og skóla og sendi frá sér
nú fyrir jólin nýja bók. Eru söguhetjurnar
þær hinar sömu og í bókinni Þegar við Kalli
vorum strákar. Þeir félagar, ég og Kalli,
hafa síður en svo lagt árar í bát og eru
uppátæki þeirra mörg og óútreiknanleg. —
Alltaf er eitthvað að gerast í kringum þá
félaga. Ef ekki er annað að gera þá er ort:
„í fjörum oft má finna skel,
ef farið er að leita.
en bestur alls, það veit ég vel,
er vinur minn hann Gabríel.“
Þetta er vísan, sem Kalli orti hér um bil
alveg um köttinn sinn Gabríel. Fékk bara
pínulitla hjálp frá ömmu sinni, sem alltaf
var að kenna honum vísur eftir einhvern
Hallgrím.
Sögurnar í bókinni eru sjö talsins og hver
annarri kostulegri. Orn á mjög létt með að
skrifa gamanmál og gæða frásöguna lífi
án þess þó að hún verði fjarstæðukennd.
Enda spurði mig lítill kunningi minn, þegar
ég las honum söguna Halarnir á kúnum:
„þetta er alveg satt, er það ekki?“
Halldór Pétursson hefur myndskreytt
bókina og bregst honum ekki bogalistin. —
Bókin er prentuð með afar skýru og læsi-
legu letri, er kemur sér vel fyrir hina ungu
lesendur, sem eflaust fagna frekari kynn-
um af þeim félögum. — Orn, haf þökk fyrir
bráðskemmtilega barnabók. — Y. H.
HEIMILI OG SKÓLI - 47