Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 55

Heimili og skóli - 01.03.1975, Síða 55
gróf og oddlaus (javanál), og ullargarn eða perlugarn er heppilegt. Efnið ætti í fyrstu að vera gróft og gjarnan dálítið stíft (strigi eða gólfklútsefni). Mamma verður að hjálpa til og sýna hvernig á að fara að, en rekið ekki upp ljót og ójöfn spor, þá missir barnið áhugann. Til að smíða Á aldrinum 5—6 ára geta bæði telpur og drengir lært að fara með einföld verk- færi. Sýnið barninu, hvernig það á að beita verkfærunum, en látið það gera smíðisgrip- mn sjálft, án þess að gera kröfu til að vinn- an verði lýtalaus. Traust og óviðkvæm borð- plata er nægilega góð sem undirstaða við smíðarnar. Lítill hamar, naglbítur, sög af minnstu gerð, þjöl og sandpappír eru heppileg verkfæri. Sem smíðaefni má benda á timburafganga, tóm tvinnakefli og kassa auk nagla. Til leikja að vatni og sandi Einnig stálpuð börn hafa gaman af að leika sér að vatni og sandi, en vilja kannski haga leikjunum öðru vísi en yngri börnin. 5 ára barn vill gjarnan þvo brúðuföt, hjálpa til við uppþvott og einföld ræstingarstörf. 6 ára barni má fá desilítra- og hálflítra- mál, trektir og slöngur, og við leik að þess- um hlutum fær það kannski hugmynd um rúmmál og stærðir. I sandinum leggur barnið vegi, grefur jarðgöng og hella og ekur bílum. Venjuleg skófla er betri en hinar veikbyggðu barna- skóflur. Hrífu er líka skemmtilegt að hafa, svo og sandskóflu, sem að vetrinum má líka oota í snjónum. Til búninga- og hlutverkaleikja þarf gömul föt, hatta, skó, veski, hálsfest- ar eða annað af því tagi. Gömul glugga- tjöld og teppi eru góð, ekki einungis í „þykjustuleikjum,“ heldur líka við kofa- byggingar. Meðal annarra skemmtilegra hluta má nefna læknistæki, hárrúllur, spsgil og greiðu fyrir hárgreiðsluleik, svo og indíána- og kúrekabúninga. Leikföng fyrir 4—5 ára börn Kubbar úr tré og plasii af ýmsum stærð- uni, einnig kubbar með tökkum (eins og Lego-kubbar). Til viðbótar við byggingar- efnið er ágætt að hafa menn, dýr, tré og annað þess háttar úr plasti. Það veitir meiri möguleika í leiknum, ef t. d. er hægt að hafa búgarðinn, sem byggður er úr kubb- unum, fullan af dýrum. Samstæða úr l"é (til að setja saman), með járnbrautartein- um, brú og lest. Rafknúnu lestirnar geta hins vegar beðið nokkur ár. Raðleikir (púsluspil) eru skemmtilegir fyrir börn á þessum aldri og þjálfa form- skynið. Fyrsti raðleikurinn ætti að vera með fáum og stórum myndhlutum, en smám saman má gera viðfangsefnið þyngra með því að nota raðleiki með fleiri og minni hlutum. Samstœðuspil þjálfa m. a. hæfileikann til að sjá hvað saman á, svo og eftirtekt smáatriða. Sem dæmi um samstæðuspil má nefna „árstíðirnar,“ sem er saman sett af 4 myndum. Á smáplötum eru einstök atriði úr myndunum og á að finna hvaða mynd þau tilheyri. Flokkun er líka skemmtilegt viðfangs- efni. Mislitum pappasnifsum, hnöppum eða HEIMILI OG SKÓLI -

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.