Heimili og skóli - 01.03.1975, Qupperneq 56
spilapeningum er blandað saman og barnið
látið flokka hlutina í hrúgur.
Perluþrœðing er enn skemmtileg á þessu
aldursskeiði. Perlurnar geta nú verið litlar
og úr plasti eða gleri.
Brúðuleikurinn á miklu hlutverki að
gegna, allt fram á skólaaldur. Brúður ættu
ekki að vera margar, en í staðinn sæmilega
vel búnar að fötum. Ungbarnbrúðunni má
tefla fram, þegar barnið er orðið 5 ára eða
þar um bil. Brúðunímið skyldi nú vera
búið öllum sængurldæðum; þegar hér er
komið kann barnið skil á öllum ixtbúnaði
rúmsins og getur búið um sjálft. Klæði-
brúður em ekki sérlega heppilegar á þessu
aldursskeiði, heldur er hyggilegt að láta
þær bíða, þar til komið er á skólaaldurinn.
Leikföng fyrir 6 ára börn
Á þessum aldri fara börnin að fást við
ýmiss konar tilraunir. Vélrœnir hlutir, sem
hœtt er að nota, eru þess vegna gott við-
fangsefni; úr og klukkur, gömul útvarps-
tæki (þó ekki með raímagnssnúru og
tengli), stækkunargler, málband, bréfavog.
Við byggingarefnið má bæta „Connector-
kassa,“ en í honum eru kubbar og hjól með
götum, sem tengd eru saman með pinnum
og þannig búnar til ýmiss konar samstæður.
Mekkanó úr tré eða plasti er líka gott og
tiltölulega ódýrt.
Skemmtileg spil komast á dagskrá
Kúluspil, Fía, Svarti Pétur, Skrýtnu
fjölskyldurnar, reikningsspil ýmiss konar
og bókstafaspil.
Gætið þess að gera ekki kröfu til að
barnið fari nákvæmlega eftir leikreglun-
um. Takið ekki strangt á því, þótt barnið
hafi rangt við til að vinna. Smám saman
skilst barninu betur tilgangurinn með því
að hafa leikreglur. Reiknings- og bókstafa-
spil er rétt að taka þá fyrst til við, er barnið
fer sjálfkrafa að sýna áhuga á tölum og
bókstöfum.
Leikbrúður
eru dýrar í innkaupum, en skemmtilegar
fyrir þetta aldursskeið. Ef mömmu og
pabba blöskrar ekki fyrirhöfnin, er þó hægt
að búa þær til heima úr pappírsmassa.
Blaðapappír er látinn liggja í bleyti eina
nótt og síðan hnoðaður með lími saman í
kúlu utan um pappírsrúllu. Andlitsdrættir
eru mótaðir í kúluna, og þegar andlitið er
orðið vel þurrt, er það málað og fest á það
ýmislegt sem til heyrir, garnhár og föt.
Fötin skulu saumuð, svo að unnt sé að
smeygja þeim upp á höndina.
6 ára barn vill vera mikið úti við. Hent-
ug leikföng eru sippuband, boltar, bæði
stórir til að sparka og minni til að kasta í
vegg og veltigjörð með priki.
Að vetrarlagi: Skíði, skautar og stýris-
sleði. Gangið úr skugga um að sleðabrekk-
an sé hættulaus, að því er umferð varðar.
Snjóþotur eru ekki hættulausar. Hraðinn
á þeim verður mikill, og börnin eiga í erf-
iðleikum með að stýra þeim og stjórna
hraðanum; þess vegna verður hætt við ó-
höppum.
4—6 ára aldurinn er það skeið, þegar
áhuginn á sögum og ævintýrum er í algleym-
ingi. Heimur ævintýranna gefur ímyndun-
araflinu ríkulegan efnivið, en það skiptir
miklu að valdar séu góðar ævintýrabækur.
Oft má fá gagnlegar leiðbeiningar í bóka-
verslunum. Það er góð regla að hafa í huga,
50 - HEIMILI OG SKÓLI