Læknaneminn


Læknaneminn - 01.02.1955, Blaðsíða 10

Læknaneminn - 01.02.1955, Blaðsíða 10
10 LÆKN ANEMINN legt (t. d. frá ári til árs) og hvers vegna er munur á því meðal þjóða ? En þá erum við komin beint inn á svið mannfræðinnar, þar sem eðlislíkar spurningar eru oft orð- aðar svo: Hvernig hafa mann- flokkarnir orðið til? Maðurinn, eins og raunar allar lífverur, er sífelldum breytingum undirorpinn — breytingum, sem leita jafnvægis við innri krafta lífsins. Það er þetta gullna jafn- vægi, sem birtist í meðaltölum hinna ýmsu eiginleika heilbrigðs manns, eða réttar orðað, í eðlilegri sveiflubreidd einhvers eiginleika. Sjúklegt ástand skapast, þegar þetta jafnvægi raskast, en það get- ur orðið vegna of sterkra ytri áhrifa, sem líkamanum er um megn að svara á eðlilegan hátt, s. s. þegar of mikill kuldi veldur kali og of mikill fjöldi sýkla hita- veiki. Eða þá, að innri kröftum lík- amans er áfátt, svo að þeim er of- viða að svara eðlilegum ytri áhrif- um, eða leiða líkamsþroskann til eðlilegrar niðurstöðu, eins og t. d. á sér stað við efnaskiptasjúkdóma og vanskapnaði. Veigamesti þátturinn í innri kröftum líkamans skapast af erfða- eiginleikunum og þess vegna verð- ur hið gullna jafnvægi í innsta eðli sínu samspil þeirra og ytri áhrifa, og það birtist okkur í því, sem erfðafræðingar nefna útlitsmynd. Síðari ára rannsóknir mínar hafa því beinzt að almennum erfðaeigin- leikum, sérstaklega að erfðum á háralit og bragði fyrir phenyl-thio- carbamide. Erfðagangurinn á bragðskynjun gagnvart phenyl- thio-carbamide er kunnur, sum- ir menn finna sterkt, biturt bragð af þessu efni, aðrir finna ekkert bragð af því. Það að finna bragð af þessu efni, er ríkj- andi eiginleiki gagnvart bragðleys- inu. Rannsóknir mínar eru því ein- faldlega fólgnar í því að ákveða, hversu almennur þessi erfðaeigin- leiki muni vera meðal íslendinga. En enn eru of fáir rannsakaðir til þess að mark sé takandi á nið- urstöðunni. Öðru gegnir um hára- litinn; það er ekki vitað, hvernig hann erfist hjá mönnum, en af líkingu við erfðagang hans hjá dýrum má gera ráð fyrir, að þar séu margir erfðaeiginleikar að verki. Það sem af er, hafa athug- anir mínar á háralitnum aðallega beinzt að eðli litarefnanna og fjölda þeirra. Með því að leysa hárið upp í lút við 37° C, má greina milli þriggja litarefna; eitt þeirra leysist upp jafnframt hár- inu, en eftir verður litarefni, sem ekki leysist upp við 37°, en leysist upp í 100° heitum lút. Þessar tvær tegundir litarefna virðast yfirleitt vera í öllu hári, svo framarlega sem það er ekki hvítt. 1 mörgu hári er svo þriðja litarefnið, sem ekki leysist upp nema í sterkri sýru. Mest er af auðleysta litarefninu í rauðu hári og ljósu hári með gullnum blæ, en torleystara efnið er því meira, sem hárið er dekkra. Um afstöðu sýruleysanlega litarefnisins til háralitarins verður ekkert sagt að svo stöddu, né heldur um innbyrðis afstöðu litarefnanna." „Hvað er að segja um beinarann- sóknir yðar og markmið þeirra?“ „Viðvíkjandi beinarannsóknun- um, þá er aðaltilgangur minn með þeim að fá vitneskju um útlit og ævi forfeðra okkar og hverjum breytingum þau hafi tekið gegn- um aldirnar. Island býður í þessu efni upp á efnivið til rannsóknar, sem óvíða, ef nokkurs staðar, mun fást jafngóður, og er það að þakka okkar ágætu sagnfræðiritum. Vegna þeirra vitum við betur en
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Læknaneminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.