Læknaneminn - 01.02.1955, Blaðsíða 30
30
LÆKNANEMINN
Heilsuvemdarstöð Reykjavíkur.
Þegar blaðið hóf göngu sína í
haust undir stjórn núverandi rit-
nefndar, var ákveðið að birta skyldi
smáþætti um nýjar heilbrigðis-
stofnanir, en eins og allir vita
hafa aldrei verið jafnmiklar fram-
kvæmdir í slíkum efnum sem und-
anfarin ár, og var því hér um al-
veg óplægðan akur að ræða.
Sú þessara nýtilkomnu stofn-
ana, sem sennilega á eftir að hafa
meiri áhrif en nokkur hinna, sem
hér hefur verið minnzt á og að
þeim ólöstuðum, að viðhalda heil-
brigði, er Heilsuverndarstöð
Reykjavíkur.
Skipulögð heilsuvernd er tiltölu-
lega nýtt fyrirbæri, og er upphaf
hennar jafnan rakið til skozka
læknisins, Sir Robert Philip, sem
kom á fót fyrstu berklavemdar-
stöð í heiminum í Edinborg árið
1887.
Fyrsti vísir slíkrar starfsemi
hérlendis var hjálparstöð fyrir
berklaveika, sem hjúkrunarfélagið
„Lxkn“ hi’att af stað árið 1919.
Starfsemi þessi hefui' aukizt og
blómgazt síðan og jafnframt henni,
þ. e. berklaverndinni, hefur sífellt
fleiri greinum heilsuverndar verið
komið á fót. Húsnæðisvandræði
hafa ætíð verið skipulagðri heilsu-
vernd hér mestur fjötur um fót,
enda hefur hún verið rekin í ill-
viðunanlegu leiguhúsnæði á mörg-
um stöðum í bænum.
1 febrúar 1946 voru fyrstu drög
lögð að byggingu Heilsuverndar-
stöðvarinnar með bæjarstjórnar-
ðisstofnanir
samþykkt, og nefnd kosin til að
gera tillögur um staðsetningu og
skipulag byggingarinnar undir for-
ustu Sigurðar Sigui’ðssonar, yfir-
læknis. Nefndin fjallaði um mál
þetta í rúmt ár og skilaði áliti,
en byggingai’framkvæmdir hófust
ekki fyrr en í maí 1950 og hafa
staðið allt til þessa, en búast má
við, að þeim verði lokið að mestu
leyti á þessu ári. Þegar eru þó
hafnir nokkrir þættir heilsuvernd-
arinnar í hinum nýju húsakynn-
um.
Stærð hússins er 1516 fermetr-
ar, og er aðalhluti þess, sem snýr
í austur og vestur, 4 hæðir og ris,
en út úr því ganga 2 álmur, til
norðurs og suðurs, sem em 2 hæð-
ir og ris hvor. Skipulag þetta var
valið með það fyrir augum, að
hin fjölþætta starfsemi, sem þarna
á að fara fram, yrði sem bezt af-
möi’kuð. —
í norðurálmu eru þegar teknar
til starfa deild til eftirlits með
barnshafandi konum, en sú starf-
semi var áður í Fæðingardeild
Landsspítalans, og auk hennar
barnaverndarstöðin. Norðurendi
álmunnar er ætlaður sem aðsetur
húð- og kynsjúkdómalæknis.
I suðurálmu hefur áfengisvarna-
stöð (geðverndarstöð) aðsetur, en
á 2. hæð verður berklavarnarstöð-
in tii húsa, og nær einnig inn á
2. hæð aðalhluta hússins.
I aðalhluta hússins verður slysa-
varstofa á 1. hæð, og mun þar að
sjálfsögðu verða stöðugur vörður.
Éru þarna 2 herbergi, þar sem
hinir slösuðu geta legið, meðan