Læknaneminn - 01.02.1955, Page 31

Læknaneminn - 01.02.1955, Page 31
LÆKNANEMINN 31 ákvörðun er tekin um, hvort hægt sé að senda þá heim eða, hvort þeir þarfnist sjúkrahúsvistar. Starfsemi þessi hefur hingað til farið fram á handlæknisdeild Land- spítalans og mikið af slysaað- gerðum komið í hlut kandídata og stúdenta; munu þeir eðlilega fara mikiis á mis, þegar þessi starfsemi flyzt algerlega þaðan, ef þeir í framtíðinni dvelja ekki hluta námstíma síns þar. En það mál- efni er enn í gerð. Á 2. hæð verð- ur, eins og áður er sagt, berkla- verndin. Verður sá hluti mjög rúm- góður og öllu haganlega fyrir kom. ið fyrir þá umfangsmiklu og fjöl- þættu starfsemi. 3. og 4. hæð húss- ins eru ætlaðar til hjúkrunar chroniskra sjúklinga; er það af illri nauðsyn vegna sjúkrarúmaskorts, en þarna var gert ráð fyrir tann- læknastofum, sem annast skyldu tannvernd barna og unglinga, rannsóknarstofum fyrir atvinnu- sjúkdóma, heilsuvernd íþrótta- manna auk aðseturs borgarlæknis- embættisins, íbúð húsvarðar o. fl. Læknar þeir, sem hingað til hafa veitt hinum ýmsu þáttum heilsu- verndarinnar forstöðu, verða það áfram, er starfsemin flyzt í híð nýja húsnæði; þannig mun Öli Hjaltested veita berklaverndinni forstöðu, Pétur Jakobsson, deild- arlæknir, hafa með höndum eftir- lit með barnshafandi konum og Hannes Guðmundsson stýra húð- og kynsjúkdómavörnunum. Fleiri læknisstöður hafa ekki verið á- kveðnar enn þá, en þess mun skammt að bíða, og verða þær nýju þá auglýstar til umsóknar. — Yfirhjúkrunarkona er Sigrún Magnúsdóttir. Hvað útbúnaði stöðvarinnar við- víkur, verður ekki mikið um á- haldakaup, þar sem hinar ýmsu deildir eru þegar vel búnar tækj- um til sinna þarfa, enda ekki ætl- unin, að þarna fari fram umfangs- miklar rannsóknir, sem hingað til hafa verið gerðar á öðrum rann- sóknarstofum, eins og t. d. blóð- rannsóknir á barnshafandi konum. Stofnunin verður rekin af bæn- um, og mun hann bera kostnaðinn að Ys á móti % frá hvoru um sig, ríki og Sjúkrasamlagi Reykja- víkur, en ríki og bær bera ein kostnaðinn af þeim stofnunum, sem S. R. er ekki greiðsluaðili að, eins og t. d. húð- og kynsjúk- dómadeildinni. — Starfsemi sú, sem þarna verður rekin, verð- ur öllum almenningi að kostnaðar- lausu. Felst hún að mestu leyti í skoðun, eftirliti, allsherjar bólu- setningum o. þ. h., en engir sjúkl. munu hljóta meðferð utan nýút- skrifaðir berklasjúklingar, sem á verða gerðar loftbrjóstaðgerðir, ef þess verður æskt, og svo auðvitað slysa-sjúklingar og langlegu-sjúk- lingarnir. Þriggja manna stjórnarnefnd veitir stofnuninni forstöðu og sér um rekstur hennar. Formaður nefndarinnar er Sigurður Sigurðs- son, yfirlæknir. SjúkrahúsKeflavíkurlæknishéraðs. Sjúkrahús þetta var vígt til starfa þ. 18. nóvember síðastl. Eins og flest sjúkrahús þessa lands, var það nokkuð lengi í byggingu, eða rúmlega áratug, og er kostnaður við það nú orðinn rúmlega 2 millj- ónir króna. Sjúkrahúsið er fremur lítið — rúmar 25 sjúklinga — og þykir þegar einsýnt, að þess verði skammt að bíða, að það fullnægi ekki þörfum héraðsins, — en það hefur innan sinna takmarka um 7 þúsund íbúa. Sjúkrahúsið er tveggja hæða og 360 ferm. að flatarmáli með 11

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.