Læknaneminn - 01.02.1955, Blaðsíða 35
LÆKNANEMINN
35
ur nýr eru eðlilega mestu græn-
jaxlar og þeim tekið sem slík-
um, þ. e. a. s. þeim er strax kennt,
að medicin þýði læknisfræði, og
upp frá því er allt byggt á jarð-
fastri undirstöðu. — Byrjað er
á anatomíu. Nýliðunum er skipt í
smágrúppur, 4—6 í hverri. Strax
í upphafi er byrjað af fullum
krafti og þeim fengin á fyrsta
degi handleggsbeinin og sagt að
fara heim og stúdera þau og koma
að viku lioinni til yfirheyrslu,
sem framkvæmd er af aðstoðar-
manni, s. k. ammanuens, sem auk
þess er stúdentunum til aðstoðar,
ef í nauðirnar rekur. Þannig er
osteologian lærð, smápróf á viku
fresti og einkunn gefin og innfærð.
Þar næst er arthrologian tekin, og
nú eru þeir látnir dissecera einn
lið hverja viku, læra og taka próf.
Líkin, sem fyrst eru notuð, eru
andvana fædd börn. — Því næst
er myologian tekin á sama hátt,
síðan angiologian, en nú er farið
að dissecera lik fullvaxinna. —
I Svíþjóð er enginn hörgull á lík-
um, því allir þeir, sem einhvern
tíma hafa þegið af ríki eða bæ
og ekki er sinnt af ættingjum,
er þeir hafa andazt, eru tekn-
ir umsvifalaust, þegar búið er
að segja yfir þeim ritualið, og
látnir í formalinkör, og liggja
bar í y2—1 ár og þykja þá hæfi-
lega præpareruð. — Þannig rekur
hvert kerfi líkamans annað, stöð-
ug vinna og aðhald svo rækilegt,
að slæpist maður í 1—2 vikur,
seinkar manni strax um heilt miss-
eri. Þó ,,tempóið“ sé erfitt, kemst
þetta fljótt upp í vana og sæmi-
lega greindum og heilsugóðum
mönnum er þetta mjög kleift, og
fyrir bragðið er auðveldlega kom-
izt yfir námsefnið. Auk þessa eru
svo fyrirlestrar fluttir af prófes-
sorum, sem lausir við útskýringar,
ítroðslur og yfirheyrslur tengja
saman og ,,complettera.“
Að vori er svo tekið próf, sem
fer þannig fram, að grúppan, sem
unnið hefur saman allan veturinn,
,,skýtur á fundi“ með prófessorn-
um, sem spyr alla meðlimi nokk-
urra spurninga án þess að fara
mjög nákvæmlega í sakirnar, sér-
staklega, ef viðkomandi hefur stað-
ið sig vel í smáprófunum, en það á
hann hægt með að sjá af náms-
ferilsbókunum en, sem lög gera
ráð fyrir, er auðvitað spurt í þaula,
ef frammistaðan í þeim hefur ver-
ið lakleg. — Þarna sitja svo
„membra colloquia“ í hæginda-
stólum og rabba saman í friði og
spekt næsta lausir við tremor, diar-
rhé, polyuri og sequele insomniae.
Þess ber að geta, að jafnhliða
prófinu í macroscopiskri anatomiu
er tekið próf í microscopiskri
anatomiu, þ. e. histologiu, en hún
er kennd samtímis anatomiunni á
síðara misseri 1. árs. Hver stúdent
fær sitt microscop og ca. 100 præ-
paröt. Skipulagið er það sama og
í anatomiunni, á hverri viku lært
og lokið við ákveðinn hluta histo-
logiunnar. Jafnframt er kennd
embryologia og endanlegt próf
tekið strax að henni lokinni. Enn-
fremur er á sérstökum kúrsus
kennd anatomia og histologia
central taugakerfisins.
Á 2. ári er byrjað á kúrsus í
kemiskri laboratoriumteknik. Jafn-
hliða því er svo kennd almenn
kemi, lífræn og ólífræn. Kennslan
fer bæði fram í fyrirlestrum og
verklega, og er síðari þátturinn
afar umfangsmikill. Skipulagið er
svipað og á 1. ári, á hverri viku
farið yfir nokkurn hluta og tekin
smápróf. Yfirferðinni og labora-
toriumvinnunni er lokið á rúmum
tveim mánuðum og lokapróf tekið.
— Seinni hluti misserisins er svo