Læknaneminn - 01.09.1969, Side 19
LÆKNANEMINN
19
HÖSKULDUR BALDURSSON, læknir:
SCOLIOSIS
Scoliosis, hryggskekkja, hefur
löngum verið eitt af erfiðustu og
jafnframt torskildustu viðfangs-
efnum orthopediunnar, Talið er,
að André hafi haft sjúkdómsein-
kenni þetta í huga, er hann gerði
táknmerki orthopediunnar. Van-
mátt og úrræðaleysi lækna gagn-
vart sjúkdómseinkenni þessu má
m. a. marka af því, að allt fram að
siðustu aldamótum og jafnvel
Jengur, litu margir á scoliosis sem
krabbamein orthopediunnar. Á
síðustu áratugum hefur skilning-
ur manna á sjúkdómseinkenni
þessu aukizt mjög og þá jafnframt
orðið mikil framför í meðferð
sjúklinga með scoliosis. Sá bætti
árangur, sem náðst hefur í með-
ferð, hefur aftur glætt áhugann
fyrir viðfangsefninu.
Scoliosis er yfirgripsmeira við-
fangsefni en svo, að hægt sé að
gera því nokkur viðhlítandi skil í
grein sem þessari. Mun því hér
verða stiklað mjög á stóru og eink-
um drepið á ýmis atriði, er komið
gætu praktiserandi lækni að gagni
í greiningu og mati á horfum
sjúklinga með sjúkdómseinkenni
þetta. Einnig mun verða minnzt á
meðferð og þá einkum ýmsar nýj-
ungar, er fram hafa komið á síð-
ustu árum.
Scoliosis má skilgrelna sem
hverja þá hliðarsveigju eða halla,
er tekur til eins eða fleiri liðbola
í hrygg og sveigir hrygginn frá
hinni eðlilegu beinu stöðu. Al-
gengast er að flokka scoliosis eft-
ir etiologiu. Er þá oft stuðzt við
flokkun Cobbs, en hún er bæði ein-
föld og hagkvæm. I einföldum
dráttum lítur flokkunin þannig út:
I FunMionál scoliosis.
II StruMural scoliosis.
a) osteopathiskar (thoracogen-
iskar; congenital vertebral
anomaliur)
b) neuropathiskar (poliomye-
litis, neurofibromatosis)
c) myopathiskar (dystrophia
musculorum)
d) idiopathiskar.
Það skal þó tekið fram, að hér
eru aðeins taldir upp algengustu
sjúkdómar í hverjum flokki.
Punktional scoliosis einkennist
af því, að sjúklingurinn getur
sjálfur fullkomlega rétt úr hrygg-
skekkjunni, ef hann vill svo við
hafa. Þar er ekki um að ræða
neinar struktural breytingar í
hrygg né í aðliggjandi mjúkum
vef. Er þetta algjör andstaða við
struktural scoliosis, þar sem sjúkl-
ingurinn getur ekki, eða að mjög
takmörkuðu leyti, rétt úr hrygg-
skekkjunni. Auk þess eru í struk-
tural scoliosis ætíð til staðar
struktural breytingar í hrygg,
eins og reyndar nafnið ber með
sér.
Orsakir funktional scoliosis eru
margvíslegar. Má þar til nefna
ójafna lengd ganglima, adduc-
tions- eða abductionscontracturu
í mjöðm, lélega stöðu (poor post-
ure) og bakverki af ýmsu tagi.
Roentgenologiskt einkennist