Læknaneminn - 01.09.1969, Page 59
LÆKNANEMINN
51
Hvítum blóðkornum f jölgar í blóð-
rásinni, og hæfileiki þeirra til
sýklaáts eykst. Spenna í spastisk-
um vöðvum minnkar, og vöðva-
krampar mýkjast.
Auk þeirra staðbundnu áhrifa,
sem stuttbylgjur framkalla, eiga
sér stað viss áhrif á allan líkam-
ann, þar eð blcðið, sem fer gegn-
um meðhöndlaða svæðið, hitnar.
Sjúklingurinn svitnar, þar sem
líkaminn leitast við að halda hita-
stiginu jöfnu. Hjartslátturinn örv-
ast og mínútumagn eykst, og þar
af leiðir, að gerðar eru auknar
kröfur til hjarta og lungna.
í sjúkraþjálfun eru þessi áhrif
hitameðferðar þýðingarmest: Slak-
andi áhrif, sársaukaminnkandi og
hin hagstæðu áhrif á vinnuhæfni
vöðva.
Áhrifin á sársaukann, sem
áreiðanlega eru ein af meginástæð-
um þess, að stuttbylgjur eru svo
mikið notaðar, eru einkum mikil,
þegar um er að ræða sársaukafulla
sjúkdóma í liðum og vöðvum. Sárs-
aukaminnkandi áhrif kælingar
byggjast á minnkaðri starfsemi
skynfæra og tauga (sjá kafla um
kuldameðferð), en erfiðara er að
gera grein fyrir Lífeðlisfræðilegum
ástæðum fyrir sársaukalinandi
áhrifum upphitunar. Sennilega er
ástæðan að nokkru leyti sú, að
upphitun virkar þannig á sárs-
aukaviðtakendur, að hvatningar-
þröskuldur þeirra hækkar. Vefirn-
ir gefa einnig betur eftir og slakna,
og þar af leiðandi veldur það minni
sársauka að teygja á þeim. Sú
aukna blóðsókn, sem stuttbvlgjur
framkalla, getur verið ástæðan til
sársaukaminnkunar, þegar sárs-
aukinn stafar af of lítilli súrefnis-
tilfærslu til vefjanna.
IncLíkationir
Stuttbylgjumeðferð kemur til
greina við eftirtalda sjúkdóma:
Arthrosis, myosis, arthritis, ten-
dinitis, peritendinitis, bursitis, epi-
condylitis og einnig við blæðingar
í vöðvum og kringum liði, en þá
eru hljóðbylgjur betri (sjá þann
kafla). Stuttbylgjur eru einnig
notaðar sem byrjun á æfingameð-
ferð til að gera hana árangursrík-
ari. Ef æfingameðferðin er sárs-
aukafull, eins og t.d. þegar um er
að ræða arthritis eða diskusprólaps
eftir aðgerð, er stuttbylgjumeðferð
sem byrjun sérlega heppileg. Stutt-
bylgjumeðferð er einnig notuð við
diskusprólaps fyrir aðgerð og á þá
að flýta fyrir rýrnun prólapsins.
Kontraindikationir
1) Stuttbylgjumeðferð og hita-
meðferð yfirleitt er fráráðin
(kontraindíseruð) við sumum
tegundum af bráðum bólgum.
2) Við nýjum meiðslum í liðum
og vöðvum, þar eð hin aukna
blóðsókn, sem stuttbylgjumeð-
ferð framkallar, eykur blæð-
inguna í hina sködduðu vefi.
3) Þar eð kröftug stuttbylgju-
meðferð er töluverð áreynsla
á líkamann, er ekki ráðlegt að
gefa hana sjúklingum með lé-
lega hjarta- og blóðrásarstarf-
semi.
4) Illkynja æxli eru tvímælalaust
kontraindíkation, þar sem þau
breiðast fljótar út við hita-
meðferð.
5) Blæðingatilhneiging, t.d. frá
magasári eða tíðablæðing.
6) Þunguð kona má alls ekki fá
stuttbylgjur á kvið eða mjó-
bak, þar eð þær geta fram-
kallað fósturlát.
7) Sjúklingi með minnkað hita-
skyn má ekki gefa stuttbylgj-
ur, þar eð hann getur ekki
sagt til um hitann.